Gerðir kirkjuþings - 1978, Blaðsíða 79
76
Tímafrekust þeirra málefna, fyrir utan afgreiðslur kirkju-
þings, er Skálholtsstaður, svo og rekstur Kristnisjóðs.
Það hefur stundum gengið treglega að innheimta lögboðnar
greiðslur ríkisins í sjóðinn. Þannig lá það fyrir á aðal-
fundi kirkjuráðs 1977, að af framlagi ríkisins fyrir árið
1976, sem með vöxtum nam rúmum 15 milljónum, hafði ekki
komið inn nema tæpar 6. Þetta olli erfiðleikum að sjálf-
sögðu. Einnig og þó öllu frekar hafði mjög staðið á því
að andvirði seldra kirkjujarða skilaði slr frá landbúnaðar-
ráðuneytinu í Kristnisjóð. En með góðum atbeina kirkjumála-
ráðuneytis fekkst fram leiðrltting á því máli, eins og
reikningar Kristnisjóðs bera með slr. Þess er þó að gæta
að stór hluti þeirra upphæða sem færðar eru á reikninginn
undir þessum lið er í langtíma skuldabrlfum og bundið.
1 sambandi við þetta mál gerði kirkjuráð ályktun á aðal-
fundi sínum 1977 svohljóðandi:
"Með hliðsjón af því ákvæði laga nr. 35/1970, að andvirði
seldra kirkjujarða skuli renna í Kristnisjóð sem stofnfl,
telur kirkjuráð óeðlilegt, að slíkar eignir slu seldar
án þess að verð þeirra sl ákveðið £ samráði við þann aðila,
þ.e. kirkjuráð, sem skv. nefndum lögum hefur á hendi
umsjón og stjórn Kristnisjóðs".
Varðandi hinar föstu, lögbundnu greiðslur ríkisins í
Kristnisjóð var mikill misbrestur á að bær væru inntar
af hendi, enda áætlun fjárlaga um þennan útgjaldalið
handahófsleg, þar sem upphæð var sett inn af einhverju
því brjóstvitisem Ig kann engin skil á, án þess að hún
væri miðuð við þann útreikning sem fyrir lá um þá fjár-
hæð sem gjaldfalla myndi á árinu. Var þá auövitað erfitt
að innheimta flð, úr því heimild var ekki til á fjárlögum.
Olli þetta miklum erfiðleikum á tímabili en hefur komist
í lag. Alyktun hlr að lútandi samþykkti kirkjuráð á síð-
asta aðalfundi svolátandi: "Að gefnu tilefni vill kirkjuráð
mælast til þess við hið háa kirkjumálaráðuneyti, að það
hlutist til um að lögboðin framlög ríkisins í Kristnisjóð
greiðist mánaðarlega fyrirfram á sama hátt og embættis-
laun (sbr. lög nr. 35/1970, 20. gr., liður b. og c.).
Ljóst má vera að Kristnisjóður getur ekki sinnt skyldum
sínum samkvæmt lögum nema greiðslur bessar berist skilvís-
lega".
Við þessari ályktun barst jákvætt svar og hafa umræddar
greiðslur verið í nokkurn veginn horfi síðan.