Gerðir kirkjuþings - 1978, Blaðsíða 32
29
3. Jóns biskups Eiríkssonar frá 1360.
4. Péturs biskups Þorsteinssonar frá 1394.
5. ölafs biskups Rögnvaldssonar frá 1461 og síÖar.
6. Sigurðarregistri frá um 1525 og síðar.
7. Gísla biskups Jónssonar frá um 1570.
7. gr.
Biskupar skulu vandlega gæta þess, að eigi veljist aðrir
til prestsþjónustu í þjóðkirkjunni en þeir, sem til þess
eru hæfir að framkvæma prestlegt embætti og annast sál-
gæzlu sóknarbarna sinna. Er engum óvigðum guðfræðingi
heimilt að sækja um preststarf í þjónustu kirkjunnar,
nema hann hafi áður fengið vottorð biskups um, að hann
fullnægi þeim kröfum, sem gjörðar eru til prestsvígslu.
Nú synjar biskup um slíkt vottorð, og er þá þeim, sem
synjað er, rátt að krefjast þess, að sérstök nefnd athugi
og úrskurði hæfni hans. 1 henni eiga sæti auk biskups,
forseti guðfræðideildar Háskola íslands og fulltrui kirkju-
málaráðherra.
8. gr.
Biskup Islands situr í forsæti á kirkjuþingi auk þess
sem hann er oddviti kirkjuraðs. Biskupar eiga allir sæti
á kirkjuþingi.
9 . gr.
Biskup Islands boðar prestastefnu og leikmannastefnu
annaðhvort ár.
A prestastefnu hafa atkvæðisrétt allir starfandi þjóð-
kirkjuprestar og fastir kennarar guðfræðideildar Haskola
Islands með guðfræðimenntun. Aðrir prestar og guðfræðingar
eiga rétt til fundarsetu með málfrelsi og tillögurétti.
A leikmannastefnu eiga sæti einn fulltrúi frá hverju
prófastsdæmi kjörinn af leikmönnum á héraðsfundi og einn
fulltrúi fyrir hver landssamtök kristilegra félaga, sem
starfa á kenningargrundvelli þjóðkirkjunnar.
10. gr.
Biskup Islands boðar biskupafund eigi sjaldnar en einu
sinni á ári. Biskupafundur getur la.gt mál fyrir kirkju-
þing.
11. gr.
Biskupum séu lagðir til embættisbústaðir.