Gerðir kirkjuþings - 1978, Blaðsíða 36
33
7. gr.
Á héraðsfundi hafa atkvæðisrétt prestar préfastsdæmisins og formenn
sóknarnefnda. Aðrir þeir, sem rétt eiga á setu í safnaðarráði, hafa
þar málfrelsi og tillögurétt.
8- gr.
Prófastur heldur héraðsfundi og boðar skriflega með hálfs mánaðar
fyrirvara. Með fundarboði skal senda-dagskrá og nauðsynleg gögn, er.
ræða skal og taka til afgreiðslu. Fundur er lögmætur, ef rett er til
hans boðað.
9. gr.
Héraðsfund skal halda fyrir 15. júní ár hvert. Þar leggur profastur
fram endurskoðaða reikninga fyrir síðasta starfsár. Þar eru^fjarmal
prófastsdæmisins rædd og gjörð sérstök grein fyrir starfi siðasta
árs.
10. gr.
Prófastur boðar a\J<ahéraðsfund, ef þurfa þykir. Skylt er honum að
boða slíkan fund, ef 1/4 hluti atkvæðisbærra fundarmanna óskar þess.
H. gr.
Hver fundarmaður á rétt á að bera upp á héraðsfundi sérhvað það, er
lýtur að kirkjulegum málum og skipan þeirra í prófastsdæminu. Þeim
málum, er snerta stiftið allt e'ða þjóðkirkjuna í heild, skal visa
til kirkjustefnu.
12 - gr.
Héraðsfundi er heimilt að ráða starfsmenn til ákveðinna starfa innan
prófastsdæmisins.
!3. gr. __ _
Héraðsfundur kýs starfsnefndir. Sé starfsnefnd í tengslum við ser
þjónustu prests , er hann sjálfkjörinn formaður hennar.
i4.gr.
Héraðsfundur kýs prófastsdæmisráð, sem er skipað leikmanni og presti
auk prófasts.
Í5. gr.
Leikmenn á héraðsfundi kjósa fulltrúa úr sínum hópi á.kirkjustefnu
stiftsins. Þeir séu jafnmargir og prestar prófastsdæmisins. Kosning
fari þannig fram, að helmingur fulltruanna sé kosinn annaðhvort ar
til 4 ára.
Þeir hafa kosningarréttt til biskupskjörs, gefa^umsögn til biskups
um hvern skuli skipa prófast, og umsögn til ráðherra um skipan
presta í prófastsdæmið.
16 . gr.
Héraðsfundur ákveður breytingar á starfsskipan prófastsdæmisins.eftir
tillögum prófastsdæmisráðs, enda liggi fyrir samþykki viðkomandi
starfsmanna.
17 . gr. ^
Ef héraðsfundarmenn, sem hlut eiga að máli, greinir á við meiri hluta
fundarmanna, þá er þeim heimilt að leita úrskurðar biskupsdæmisráðs.
Sé sá úrskurður samhljóða samþykkt héraésfundar, tekur hann gildi,
annars sé hann borinn upp á næsta héraðsfundi, og gildir þá endanlega
atkvæðagreiðsla um málið.
III. KAFLI.
Um prófastsdæmisráð.
18. gr.
Prófastur situr í prófastsdæmisráði ásamt leikmanni og presti, sem
kjörnir eru á héraðsfundi til 4 ára. Prófastur er oddviti ráðsins.