Gerðir kirkjuþings - 1978, Blaðsíða 23
20
kirkju eða safnaðarheimilis er sóknarnefndum heimilt að
leggja sérstakt kirkjubyggingargjald á þá, er sóknargjald
skulu greiða, að fengnu samþykki safnaðarfundar.
Gjald þetta eða sambærilegt vinnuframlag má aðeins leggja
á mcðan á byggingu stendur.
Þessi till. var felld með 6:7 atkv. Um 7. gr. lögðu þeir
til, að hún væri óbreytt frá frumvarpinu, nema að orðin:
"að fenginni ákvörðun prófastsdæmisráðs" félli niður.
Þessi till. var felld með 5:7 atkv. Breytingartill. við
nefndarálitið varðandi 11. gr. (til samræmis við frv. eins
og það var lagt fyrir upphaflega) frá sömu þingmönnum var
felld að viðhöfðu nafnakalli skv. ósk sr. Jóns Einarssonar.
Nei sögðu: sr. Eiríkur J. Eiríksson, Helgi Rafn Traustason,
Jóhanna Vigfúsdóttir, sr. Lárus Þorv. Guðmundsson, Margrlt
Gísladóttir, ðskar Þór Sigurbjörnsson, sr. Pltur Þ. Ingjalds-
son, sr. Sigurður Guðmundsson, sr. Trausti Pltursson og sr.
Þorbergur Kristjánsson, alls 10.
Já sögðu: Gunnlaugur Finnsson, Hermann Þorsteinsson, sr.
Jón Einarsson or Þórður Tómasson, alls 4.
Sr. Jónas Gíslason sat hjá með þeim rökstuðningi, að hann
teldi ekki txmabært að afgreiða till . á þessu stigi, bar
sem frv. um jöfnunarsjóð prófastsdæma yrði fyrirsjáanlega
ekki afgreitt á bessu þingi. Biskup greiddi ekki atkv. með
hliðstæðum rökstuðningi.
Sr. Jón Einarsson bar fram nýja breytingartill. við 11. gr.
en henni var vísað frá skv. dagskrártill. frá sr. Lárusi
porv. Guðmundssyni, er samb. var með 10:1 atkv. Þá var
11. gr. frv. samþykkt með 10 samhljóða atkvæðum.
Aðrar greinar voru samþ. samhljóða (að frátöldum 6. og
7. gr), svo og frv. í heild eins og það fer hlr á eftir:
Frumvarp_t_il_laga um^f^árreiður s_ókna.
I. KAFLI.
Um sóknargjöld.
1. gr.
Hver íslendingur á aldrinum 17 til 67 ára sem er í þjóð--
kirkjunni, er heimilisfastur hlr á landi og greiðir ^úisvar>
samkvæmt IV. kafla laga nr. 8/1972 um. tekjústofna sveitar-
fllaga, skal árlega greiða sóknargjald til' þeirrar sóknar,
sem hann átti lögheimili' í'"næstliðinn 1. desember samkvæmt
þj óðskrá.