Gerðir kirkjuþings - 1978, Blaðsíða 35
32
19 7 8 ____1 ^. _k d. r k j uþ_i n_g______
Frumvarp
til la_ga_um ^nófastsdæmi_j_ £"t2°Hn_°£ ernbætt_i.
Flutt af kirkjuráði.
Frsm. sr. Jónas Gíslason.
I. KAFLI.
Um prófastsdæmi.
1. gr.
Sóknir mynda prófastsdæmi , sem er sjálfstæð starfseiningStærð
prófastsdæma skal að jafnaði miða við, að prestar þess se'u ekki færri
en 4 og ekki fleiri en 7. Mörk prófastsdæma skulu að jafnaði fylgja
sýslumörkum og kjördæmum.
2. gr.
Nú er mörkum prófastsdæma breytt. Skulu þá héraðsfundir gjöra tillögur
um slíkar breytingar, sem síðan eru lagðar fyrir kirkjustefnu.biskups
dæmisins til samþykktar. Ný mörk taka gildi, þegar allir þessir aðilar
hafa samþykkt þau, ella sker ráðherra úr að fengnum tillögum biskups.
3- gn.
1 hverju prófastsdæmi skal skipuleggja þá frumþjónustu, er soknarfolk
á rétt á í sókn sinni og tekur til þess hluta starfs prestsins, sem
fólgið er í almennu guðsþjonustuhaldi, veitingu sakramennta, vigslum,
greftrunum, vitjunum, sálusorgun og annarri þjónustu, sem þeim störfum
fylgir, svo sem nánar er kveðið á um í lögum þessum.
4. gr.
1 hverju prófastsdæmi skal skipuleggja störf presta^og annarra starfs-
manna að sérþjónustu, sem er öll önnur kirkjuleg þjónusta í sókninni
en frá er greint í 3. gr., auk þjónustu við þá, sem ekki geta notið
frumþjónustu á eðlilegan hátt.
S. gr.
Við ákvörðun frumþjónustu og sérþjónustu skal við það miðað, að einn
prestur fari með frumþjónustu íhverri sókn, ella skal starfsskipting
presta skýrt mörkuð. Þeim presti, er frumþjónustuna annast, skal að
jafnaði falin sérþjónusta í sókninni, ef ekki er um að ræða þjónustu
svið, sem snertir fleiri sóknir eða prófastsdæmið í heild, og betur
færi, að aðrir hefðu með höndum.
II. KAFLI.
Um héraðsfund.
6- gr. _ _ .
Héraðsfundur er vettvangur stjórnunar og skipulags í hverju profasts
dæmi. Þar eru tekin til umræðu og afgreiðslu öll sameiginleg mál þjoð
kirkjunnar í prófastsdæminu. Starfsskil fara fram á héraðsfundi.