Gerðir kirkjuþings - 1978, Blaðsíða 31
28
4 . gr.
Biskup íslands fer með yfirstjórn sameiginlegra mála
bjóðkirkjunnar og kemur fram fyrir hennar hönd út á við
gagnvart stjórnvöldum og erlendum aðilum í málum, sem
varða kirkjuna í heild. Biskup íslands hefur samráð og
samstarf við hina biskupana um ákvörðun mála og getur
falið þeim að koma fram fyrir hönd kirkjunnar.
Biskupar fara hver með sérmál biskupsdæmis síns. Þeir
vígja presta og kirkjur og hafa tilsjón með kristnihaldi
hver í sínu biskupsdæmi, hafa yfirumsjón með öllu kirkju-
legu starfi þar og setja fram tillögur, umsagnir og álits-
gjörðir um mál, er varða biskupsdæmi þeirra sérstaklega.
Þeir setja próföstum, prestum og sóknarnefndum erindis-
bréf. Þeir vísitera kirkjur, presta og söfnuði biskups-
dæmis síns eigi sjaldnar en á fimm ára fresti.
5 . gr.
Biskupsstofa skal vera í Reykjavík. Þar hafa kirkjuþing
og kirkjuráð einnig aðsetur. Biskupsstofa annast afgreiðslu
sameiginlegra mála kirkjunnar, einnig mál kirkjuþings og
kirkjuráðs svo og sérmála Reykjavíkurbiskupsdæmis.
Skálholts- og Hólabiskupum er heimilt að ráða sér fulltrúa.
Biskup hefur forræði á dómkirkju biskupsdæmis sms og
ber ábyrgð á helgihaldi í henni.
Eignir og sjóðir, sem bundnir eru ákveðnu biskupsdæmi,
heyra undir biskup þess, en Biskupsstofa annast vörzlu
og reikningshald annarra eigna. Kirkjuþing ræður kirkju-
eignum þeim, sem hér um ræðir, enda mæli lög, skipulags-
skrár og aðrir löggerningar því eigi í gegn.
6 . gr.
Þegar biskup vígir kirkju, gefur hann út máldaga, þar sem
lýst er kirkjunni og getið gripa hennar, eigna og réttinda.
Þar skal þess og getið, hversu mikilli þjónustu kirkjan
á rétt á árlega, svo og hver sóknarmörk eru. Kirkjumál-
daga skal rita £ sérstaka bók, er varðveitist við biskups-
embættið. Þá leggur biskup hverri kirkju til sérstaka
bók, kirkjubók, sem x verði færðar allar athafnir, sem
framkvæmdar eru í kirkjunni. Verði ágreiningur um fornar
eignir og réttindi kirkna, skal hann útkljáður eftir
lögum um Kristnisjóð frá 1970 og þar, sem þau ná ekki
til, eftir þessum máldagaskrám:
1. Vilchins biskups frá 1397.
2. Auðunar biskups frá 1318.