Gerðir kirkjuþings - 1978, Blaðsíða 11
8
annari umræðu var frv. samþykkt, 1.-14. gr. samhljóða. Við
15. gr. bar Helgi Rafn Traustason fram svofellda breytingar
till.: Sóknarnefnd skal skipta með sér verkum formanns,
gjaldkera og ritara og varamanna þeirra þegar eftir kjör
í sóknarnefnd. Sóknarnefnd hafi ákveðið verksvið og skal
hóraðsráð setja sóknarnefndinni erindisbréf. Þegar sóknar-
nefndarmenn eru fleiri en fimm skulu þeir kjósa úr sínum
hópi þriggja manna framkvæmdarnefnd.
Breytingartill. þessi var felld með 6:6 atkv. Till. um að
fella niður 18. gr. var samþ. Einstakar greinar og frv. í
heiTd síðan samþykkt samhljóða í þessari mynd:
Frumvarp_t_i 1_1 aga um_k_irkj us óknir.
I. KAFLI.
Um kirkjusóknir og skipan þeirra.
1. gr.
Landinu er skipt í kirkjusóknir, sem eru félög þess fólks
innan þjóðkirkjunnar, sem býr á afmörkuðu landssvæði.
Hver sókn er félagslega og fjárhagslega sjálfstæð eining,
þar sem sóknarfólk á rétt á kirkjulegri þjónustu og ber sam
eiginlega skyldur, sem nánar er kveðið á um í lögum þessum.
2. gr.
Stærð sókna skal við það miðuð, að sóknarfólk verði að
jafnaði eigi fleira en 4000 og eigi færra en 100.
Við ákvörðun sóknarmarka skal taka tillit til sögulegrar-
og menningarlegrar hefðar, samgangna, staðhátta og félags-
legra aðstæðna.
Við skipulagninu nýrra íbúðarhverfa skal gert ráð fyrir
skipan sókna og haft fullt samráð við héraðsráð.
3. gr.
Þegar til þess kemur að skipta sókn, sameina sóknir eða
færa til sóknarmörk, gerir héraðsráð tillögur þar um til
aðalsafnaðarfundar (eða - funda, ef fleiri sóknir eiga í
hlut). Ný sóknarmörk taka gildi, ef aðalsafnaðarfundur
(fundir) mælir með og héraðsfundur samþykkir, ella sker
ráðherra úr að fengnum tillögum biskups.