Gerðir kirkjuþings - 1978, Blaðsíða 46
1978
11_. ki£kj_u_þing
10. mál
FrumyarjD
til la£a_uE Kirkýubyygýngayjóð^
Flutt af kirkjuráði.
Frsm. Gunnlaugur Finnsson.
Kirkjuþing 1976 fól kirkjuráði að hlutast til um að lögin
um Kirkjubyggingasjóð yrðu endurskoðuð. Fól kirkjuráð þeim
Gunnlaugi Finnssyni, alþingismanni, og sr. Eiríki J. Eiríks-
syni, prófasti, að gera tillögu um breytingu á lögum þessum.
Lögðu þeir fram í kirkjuráði frv. til laga um Kirkjubygginga-
sjóð, sem síðan var flutt á kirkjuþingi. Fer frv. hár á eftir
ásamt inngangi nefndarmanna. Löggjafarnefnd, sem fekk frv. til
meðferðar, lagði til fáeinar orðalagsbreytingar, sem allar
voru samþykktar og frv. síðan einróma:
Við undirritaðir, sem kirkjuráð skipaði til bess að athuga
tillögu frá kirkjuþingi 1976 um Kirkjubyggingasjóð (13. mál)
höfum kynnt okkur þetta mál frá ýmsum hliðum.
Sú athugun hefur m.a. leitt í ljós þá staðreynd, að Félags-
heimilasjóður hefur heimild ráðherra (skv. úrskurði í bréfi)
að styrkja félagsheimili safnaða um 40% og teljum við af-
greiðslu styrkbeiðna stjórnar Félagsheimilasjóðs í viðunandi
horfi og bakkarverða.
Lög um Kirkjubyggingasjóð eru úrelt orðin í veigamiklum
atriðum (Lög nr. 43. 14. apríl 1954).
Nú liggur fyrir kirkjuþingi frumvarp til laga um sóknar-
kirkjur (kirkjuþing 1978, 2. mál) og eru þar ákvæði í
7. gr. um greiðsluaðild ríkis og sveitarfélaga að byggingu
kirkna og endurbyggingum. Teljum við hina mikilvægustu úr-
bót og lausn þessa máls, ef þær tillögur næðu fram að ganga,
en meðan ekki liggur neitt fyrir, að svo stöddu, um það,
teljum við ekki fært að leggja fram fullnaðarálit um breyt-
ingar á einstökum greinum (svo sem 1., 2. og að nokkru á
3. gr.) fyrrnefndra laga.
Hins vegar, ef kirkjuráði þætti við hæfi, að kirkjuþing
nú afgreiddi endurskoðun á lögum um Kirkjubyggingasjóð,