Gerðir kirkjuþings - 1978, Blaðsíða 17
1978
11._kirkj uþing
2 . mál
Frumvar^
til jLa._ga_um sáknarkirkiur.
Flutt af kirkjuráöi.
Frsm. sr. Jón Einarsson.
I. KAFLI.
Um sóknarkirkjur.
1. gr.
1 bverri sókn skal vera kirkja (kapella), þar sem guðsþjónustur og
aðrar helgiathafnir fara fram.
Þegar sérstakar aðstasður eru fyrir hendi, geta tvasr sóknir haft afnot
af sömu kirkju. Skal þá gerður um þeð samningur, er prófastur stað-
festir.
2 • gr.
Sóknarkirkja skal að jafnaði vera eign sóknar og á ábyrgð sóknar-
nefndar og sóknarprests undir yfirstjórn prófasts og biskups.
Verði ágreiningur milli sóknarnefndar og sóknarprests um notkun eða
forræði kirkju, skal leita úrskurðar prófastsdæmisráðs.
3. gr.
Reksturs- og viðhaldskostnaður sóknarkirkna og annars húsnæðis fyrir
safnaðarstarf skal greiðast af sóknartekjum. Sá viðhaldi og umhirðu
sóknarkirkju ábótavant að dómi prófasts eða biskups, skal hann láta
úr bæta á kostnað viðkomandi sóknar.
Hafi sóknarkirkja verið gerð að greftrunarkirkju, skal hún áfram lúta
yfirumsjón prófasts og biskups, en kostnaður greiðast af tekjum
kirkjugarðsins.
4- gr.
Sóknarkirkjur og önnur kirkjuhús þjóðkirkjunnar eru friðhelg og skulu
eigi tekin í notkun, fynr en þau hafa verið vigð af biskupi eða
prófasti í umboði hans. Sama gildir um kirkjur, sem byggðar eru að
mestu leyti að nýju.
öheimilt er að taka aflagðar sóknarkirkjur til annarra nota, fyrr
en þær hafa verið afhelgaðar.
II. KAFLI.
Um byggingu kirkna.
5- gr.
Þegar reisa á sóknarkirkjur, skal bygging þeirra og búnaður háð sam-
þykki kirkjubyggingarnefndar, sem jafnframt skal vera sóknarprestum
og sóknarnefndum til ráðgjafar og leiðbeiningar.
1 kirkjubyggingarnefnd skulu eiga sæti: Biskup íslands eða fulltrúi
tilnefndur af honum, húsameistari ríkisins eða arkitekt tilnefndur
af honum, en kirkjumálaráðherra skipar þriðja mann, er hafi sárþekkingu
á kirkjubyggingarlist.
Biskup eða fulltrúi hans er formaður nefndarinnar.
Laun hennar greiðast úr ríkissjóði.