Gerðir kirkjuþings - 1978, Blaðsíða 76
73
undirtektir góðar eftir atvikum en því miður_ hafa aðgerðir
runnið út í sandinn, þegar til alvörunnar kom.
10. mál var afgreitt í sambandi við 12. mál.
11. mál, tillaga til þingsályktunar um lýðháskóla, sem í
afgreiðslu þingsins fól í sár áskorun til menntamálaráð-
herra að hann beitti sér fyrir lagasetningu er veitti
Skálholtsskóla fjárhagslegan grundvöll. Kirkjuráð áréttaði
þessa áskorun að sjálfsögðu, eins og það hafði áður margoft
gert. Er ekki að orðlengja það, að þetta mál hlaut farsælar
lyktir á Alþingi fyrir atbeina menntamálaráðherra, Vilhjálms
Hjálmarssonar, og með stuðningi annarra góðra manna. Voru
þau úrslit einn hinn gleðilegasti sigur kirkjunnar á sviði
löggjafarmála í seinni tíð.
10. og 12. mál afgreiddi þingið í einu, en þar var um að
ræða þingsályktunartillögur um útgáfu rita um Jón Vídalm
og Brynjólf Sveinsson, sem þingið færði nokkuð í aukana.
Kirkjuráð fól sr. Eiríki J. Eiríkssyni, flutningsmanni
tillagnanna, að kanna nánar hvað tiltækilegt væri að
hafast að í þessu máli.
13. mál, tillaga til þingsályktunar um Kirkjubyggingasjóð.
Samþykkti kirkjuráð að fela þeim sr. Eirxki J. Eiríkssyni
og Gunnlaugi Finnssyni að hefja þá endurskoðun á gildandi
lögum, sem tillagn mælir fyrir um.
14. mál var dregið til baka af flutningsmanni.
15. mál varðar Strandarkirkju og kaus þingið milliþinga-
nefnd til að framkvæma þá athungun, sem bar er um að ræða.
16. mál. tillaga til þingsályktunar um skipun nefndar til
að gera úttekt á fjárhagsstöðu og fjárþörf þjóðkirkjunnar.
Var kirkjuráði falið að skipa þriggja til fimm manna nefnd
til þess að vinna þetta verk. Kirkjuráð ákvað að fresta
því þá að sinni að skipa þessa nefnd, enda taldi það að
vanda þyrfti val manna. Við íhugun málsins siðar lét það
sjónarmið til sín taka, að eðlilegt væri, að sú athugun,
sem 2. mál kirkjuþings gerir ráð fyrir og nefnd var falið
að annast, kæmist á einhvern rekspöl, því niðurstaðan áf
þeirri athugun á að geta veitt allmikla fótfestu og viðmiðun.
Það er grundvallaratriði, að bað sé kannað til hlitar, hvort