Gerðir kirkjuþings - 1978, Page 13

Gerðir kirkjuþings - 1978, Page 13
10 8. gr. Sók'narfólk á rétt á guðsbjónustum í sóknum sínum, er skal að jafnaði miða við eftirfarandi: a. í sókn með 600 manns eða fleiri skal vera almenn guðs- bjónusta hvern helgan dag. Ef tveir prestar þjóna sömu sókn skulu vera tvær almennar guðsþjónustur hvern helgan dag. b. í sókn með .300 til 600 manns skal vera almenn guðs- þjónusta annan hvern helgan dag. c. í sókn með 100 til 300 manns skal vera almenn guðs- þjónusta fjórða hvern helgan dag. d. í sókn með færri en 100 manns skal vera almenn guðs- þjónusta áttunda hvern helgan dag. Þjónusturéttur vegna fjölgunar eða fækkunar sóknarfólks skal endurskoðaður eigi sjaldnar en 10. hvert ár. 9 . gr. 1 hverri sókn landsins á sóknarfólk rétt á kirkjulegri sérþjónustu, svo sem fermingarfræðslu, barna- og æskulýðs- starfi og þjónustu við sjúka og aldraða. Ennfremur á fólk með sérþarfir rétt á kirkjulegri þjón- ustu £ þeirri sókn, þar sem það býr eða dvelst. Þar er átt við alla þá, sem geta ekki notið kirkjulegrar þjón- ustu á eðlilegan hátt vegna vinnu, dvalar fjarri heimili eða á stofnunum vegna sjúkleika. III. KAFLI. Um safnaðarfundi. 10. gr. Aðalsafnaðarfundur skal haldinn árlega. Hann er vettvangur starfsskila og þar skulu rædd málefni sóknarinnar. Hann fer með æðsta vald í málum sóknar og sóknarfólks, sem undir hann heyra samkvæmt lögum þessum. Hnekki fundurinn gerðum sóknar- nefndar, getur hún bó leitað úrskurðar héraðsfundar. Aðra safnaðarfundi skal halda, ef meiri hluti sóknarnefndar fer fram á það eða 1/4 hluti sóknarfólks. 11. gr. Sóknarnefnd boðar safnaðarfundi með minnst þriggja daga fyrirvara á sama hátt og venja er um messuboð í sókninni. Fundarefni skal kynnt um"leið og fundur er boðaður. Fundur er lögmætur, ef rétt er til hans boðað, og ræður afl atkvæða úrslitum mála, sbr. bó 10. gr.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.