Gerðir kirkjuþings - 1978, Page 16

Gerðir kirkjuþings - 1978, Page 16
13 22. gr. Starfsmenn sókna, sem ráðnir eru í fullt starf, eiga rétt til setu á heraðsfundi með málfrelsi og tillögurétt. 23. gr. Sóknarnefndarmenn og aðrir starfsmenn sóknanna skulu eiga kost á að sækja námskeið, er fjalla um almenn safnaðar- störf eða sérstök starfssvið beirra. Námskeið bessi skulu haldin á vegum préfastsdæmisins eða biskupsdæmisins, og skulu sóknirnar ekki bera annan kostnað en ferðakostnað þátttakenda. 24. gr. Sóknarprestur, sóknarnefnd, formenn safnaðarfélaga og kirkjukóra og annað fast starfslið sóknarinnar mynda safnaðarráð, sem skylt er að kalla saman til fundar, ef minnst 3 ráðsmanna æskja þess. Formaður sóknarnefndar boðar safnaðarráðsfundi. Tilgangur safnaðarráðsfunda er að vera vettvangur umræðna og samræmingar á störfum innan hverrar sóknar. Samþykktir safnaðarráðs eru eigi bindandi nema til komi samþykki aðalsafnaðarfundar. 25. gr. Ágreiningi, sem upp kann að koma innan sóknar og varðar starfsmennina eða störf þeirra og eigi verður þar leystur, skal vísa til prófasts, sem leitar lausnar í samráði við sóknarprest. Takist þær hins vegar ekki, skal ágreiningi vísað til héraðsfundar til úrskurðar, en deiluaðilar hafa þó rétt til að skjóta úrskurði héraðsfundar áfram til biskups.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.