Gerðir kirkjuþings - 1978, Page 61

Gerðir kirkjuþings - 1978, Page 61
58 Kjörmenn eru sóknarnefndarmenn í hlutaðeigandi prestakalli. Varamenn taka sæti aðalmanna -ef forfallaðir eru. Sé prófastur héraðsins umsækjandi um kallið, nefnir biskup til annan prófast í hans stað. 3. gr. Kjörmannafundur er lokaður og stýrir prófastur honum. Á fundinum skulu umsóknir ásamt umsögnum biskups liggja frammi til athugunar og eru umsagnirnar algjört trúnaðar- mál. Að lokinni athugun gagna fer fram val á umsækjanda þegar á þeim fundi eða í síðasta lagi innan tveggja sólarhringa, ef ósk um frestun kemur fram frá kjörmanni eða prófasti. Atkvæðagreiðslan er leynileg. Prófastur afhendir hverjum kjörmanni atkvæðaseðil og setur kjörmaður kross fyrir framan nafn þess, er hann kýs. Að lokinni kosningu eru atkvæði talin á kjörmannafundi. Ef umsækjandi er einn telst val hans bindandi, hafi hann hlotið 2/3 atkvæða. Ef umsækjendur eru fleiri nægir helmingur atkvæða. Nú eru umsækjendur þrír eða fleiri og enginn hefur hlotið helming greiddra atkvæða, s'kal þá endurtaka kosninguna bundið þannig að sá, sem fæst atkvæði hefur hlotið við síðustu atkvæðagreiðslu fellur úr. |tfú er kosið milli tveggja umsækjenda og hvorugur hlýtur helming greiddra atkvæða, er þá valið ekki bindandi. 4. gr. Að loknum kjörmannafundi skal prófastur hlutast til um að sóknarnefnd eða nefndir hlutaðeigandi prestakalls kynni á almennum safnaðarfundi eða á annan sannanlegan hátt innan sjö daga frá því að fundi lauk, hver hafi verið valinn eða hverjir hlotið flest atkvæði, sé valið eigi bindandi. 5. gr. Nú berst skrifleg ósk um það frá minnst 25% atkvæðisbærra sóknarbarna í prestakallinu, innan 7 daga frá því að niðurstöður voru kynntar sbr. 4. gr., að almennar prest- kosningar fari fram í prestakallinu, og er þá skylt að verða við því. Fer framkvæmd þeirra að ákvæðum III. kafla laga þessara.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.