Gerðir kirkjuþings - 1978, Page 77

Gerðir kirkjuþings - 1978, Page 77
74 og hvernig kirkjan má nýta til eigin nauðsynja þær eignir, sem bókfærÖar eru á hennar nafn, þær sem enn eru eftir af þeim eignum, sem henni voru lagðar á sínum tíma og stóðu undir öllum rekstri hennar. öll úttekt á stöðu og þörfum kirkjunnar í fjárhagslegu tilliti hlýtur að taka verulegt mið af þessu atriði og öll hugsanleg sókn í þá átt að búa betur um hnúta í þessum efnum, öll samningsaðstaða gagnvart löggjafarvaldinu, byggist mjög á bví, að spurningin um kirkjueignir verði tekin föstum tökum. Sú frestun sem orðið hefur á umræddri nefndarskipun er bví ekki óeðlileg og þýðir engan veginn, að málið hafi verið lagt til hliðar. Slík nefndarskipun verður sjálfsagt framhald af viðhlít- andi niðurstöðu af meðhöndlun samþykktarinnar um kirkjueignir. 17. mál, tillaga til þingsályktunar um ráðstöfun á andvirði seldra prestsseturshúsa, sem var samþykkt sem áskorun til Alþingis, var send til Alþingis og kirkjumálaráðherra beðinn að veita því máli brautargengi. 18. og 29. mál voru afgreidd í einu. Þarna er enn um að ræða löggjafarmál, eða breytingar á gildandi lögum og því undir löggjafarvaldið að sækja um framgang. Samþykkti kirkjuráð að fara þess á leit við kirkjumálaráðherra að hann flytti málið á Alþingi. Var það og gert, en ekki hefur það verið lagt fram sem frumvarp þar. 19. máli, tillögu til þingsályktunar um nýja útgáfu Biblíunnar, var fyrst og fremst beint til fjárveitinga- nefndar Alþingis og var flutt þar, en ekki bar það árangur til hækkunar á framlagi á fjárlögum til Biblíufélagsins. 20. mál, um nefnd leikmanna til þess að athuga álit Starfs- háttanefndar. Var kosin nefnd í bað mál og kann að vera að hún sé undir bað búin að láta kirkjuþingi í té álit. 21. mál, frumvarp til breytinga á lögum um skipun presta- kalla og prófastsdæma og um Kristnisjóð frá 27. apríl 1970. Þingnefndin, sem fjallaði um málið, lagði til að því væri vísað til safnaðarráðs Reykjavíkurprófastsdæmis og afgreiddi kirkjuráð málið í samræmi við það. 22. mál, tillaga til þingsályktunar um fornleifarannsóknir. Var samþykkt að vekja athygli þjóðminjavarðar á þessu máli og óska aðildar hans. Hefur ekki meira úr orðið að svo búnu..

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.