Gerðir kirkjuþings - 1978, Side 81

Gerðir kirkjuþings - 1978, Side 81
78 starfsmanni, sem se til þess hæfur að gera ymsar frum- athuganir og leggja a rað? auk þess sem hann annaðist kynningarstarf og stæði jafnvel að námsskeiðum fvrir presta og aðra starfsmenn kirkjunnar með tilliti til markvísari kynningar á málstað og starfi kirkjunnar. Einnig þyrfti hann að standa fyrir ráðstefnum með mönnum í lykilstöðum. Hann þyrfti að hafa sér við hlið nefnd eða starfshóp manna, sem stæði með honum að rannsóknum og væri til ráðuneytis m.a. um útgáfumál og hvers kyns kynningarstarf. Þegar þetta mál var á dagskrá í kirkjuráði og síðar á prestastefnu var tekið mið af þvi, að framundan er mikil- vægt afmæli, ár stórrar minningar, þúsund ára minnig þess kristniboðs, sem leiddi til kristnitöku árið 1000. Árið 1981 þarf kirkjan að gera eftirminnilegt. Til bess eru öll efni og rök. £g á ekki út' af fyrir sig við tilhald, þó að hátíð eða hátíðir verði; að sjalífsögðu haldnar. En fyrst og fremst þyrfti kirkjan að helga kristniboðs- afmælið með því að efla sig til sóknar í kristniboði og stíga eitthvert það skref £ því efni, sem marki nokkurt far á þúsund ára vegi hennar með þessari þjóð. Það mætti hugsa sér að vér reistum Þorvaldi víðförla þann varða, auk varðans sem hann fær á Giljá, að kirkjan kæmi á fót kristniboðsmiðstöð - hvert svo sem nafnið ætti að vera á slíkri stofnun - miðstöð sem hefði með höndum skipu- lega útbreiðslustarfsemi, útgáfu, kynningu og dreifingu lestrarefnis, erindisrekstur til vakningar og leiðbéiningar £ safnaðarmálum og alhliða kynningarstarf með hverjum þeim ráðum, sem gagnlegust eru á hverjum t£ma. Einnig kæmi til greina kristniboð erlendis, eitthvert frumkvæði á þv£ sviði á vegum kirkjunnar sem heildar og aðhlynning, örvun og stuðningur við starf sjálfboðaliða innan kirkj- unnar á þessu sviði. íg gr£p hér aðeins lauslega á þeim atriðum, sem borið hafa á góma £ kirkjuráði £ sambandi við starf blaða- fulltrúa, svo að það starfsheiti sé notað, meðan annað betra liggur ekki á lausu. Þá hefur kirkjuráð rætt talsvert um kirkiulegt starf meðal sjómanna. Hvað hefur islenzka kirkjan gert fyrir sjómenn? Auðvitað mikið um aldirnar liðnu með þvi trúar- lega veganesti, sem hún hefur veitt sjomönnum eins og öðrum landsmönnum. En skipulegt sjómannastarf á vegum

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.