Gerðir kirkjuþings - 1989, Síða 24
Skálholt:
Síðasta Kirkjuþing gjörði samþykkt um Skálholt og starfsemina
þar. Var þar fagnað áformum um aðalskipulag, sem þó er ekki enn
komið 1 höfn.
En biskup hefur fundað með arkitektinum og sameiginlegur fundur
með honum og Kirkjuráði er fyrirhugaður.
Skálholtsskóli verður rekinn með nýju sniði þetta starfsár. Er
byggt upp á námskeiðum og styttri dvalartimum hópa. Á
haustmánuðum eru fermingarbarnanámskeið hópa úr Kjalarness- og
Reykjavikurprófastsdæmum i samvinnu við Fræðslu- og Þjónustudeild
og er mikil aðsókn. Á fundi Skólanefndar i Skálholti voru lögð
drög að framtiðarverkefnum, sem siðar verða útfærð á fundum
skólaráðs.
Sumartónleikar i Skálholti voru með liku sniði og undan farin
sumur undir ötulli og áhugasamri stjórn Helgu Ingólfsdóttur. Voru
tónleikar mjög vel sóttir og mikill hugur í tónlistafólkinu
varðandi framtiðina. Gerður hefur verið starfssamningur við
nýráðinn organista Hilmar Örn Agnarsson, en hann er enn við nám,
en kemur heim um jól og verður siðan næsta sumar við störf sín
í Skálholti.
Þá hélt biskup fund 9. ágúst með próföstum þeirra prófastsdæma,
sem sérstaklega hafa sinnt sumarbúðamálum i Skálholti og sótti
séra Guðmundur Óli Ólafsson einnig þann fund ásamt Birni
Erlendssyni. Ákveðið var að taka mál Skálholtsbúða fyrir á
héraðsfundum prófastsdæmanna og mundu verða tilnefndir fulltrúar
til að vinna að enn frekari samstarfi og uppbyggingu
Skálholtsbúða.
Sveinbjörn Finnsson, sem verið hefur staðarráðsmaður frá upphafi
núverandi starfs i Skálholti, hefur nú látið af störfum. Ber að
þakka Sveinbirni ötula og umhyggjusama þjónustu við Skálholt,
sem hann vann einlæglega og metur mikils. Umsjónarmaður
Skálholtsstaðar i stað Sveinbjörns hefur verið ráðinn til
bráðabirgða Björn Erlendsson, bóndi x Skálholti og hefur verið
gerður starfssamningur.
Nauðsynlegt er að taka hótelreksturinn fyrir og huga að þvi
fyrirkomulagi, sem bezt þjónar kirkjunni, starfi í Skálholti og
ferðafólki á sumrin.
Kristnitökuafmælið.
Starfað hefur nefnd að undirbúningi kristnitökuafmælisins árið
2000. Upphaflega voru i nefndinni biskup, söguprófessor við
Guðfræðideildina og staðarprestur á Þingvöllum. Siðan bætti
Kirkjuþing við tveimur fulltrúum 1986 og er því nefndin skipuð
fimm mönnum. Hefur töluvert verið fundað frá þvi störf hófust
1985, en það ár voru fjórir fundir og sex voru fundirnir árið
eftir. Sú nýja nefnd kom fyrst til fundar 5. febrúar 1987 undir
forsæti herra Péturs Sigurgeirssonar, en aðrir nefndarmenn eru
séra Heimir Steinsson, séra Jónas Gislason, Margrét Jónsdóttir
og séra Sigurjón Einarsson og urðu fundir nefndarinnar fjórir,
þar til núverandi biskup tók við forsæti og boðaði til fyrsta
21