Gerðir kirkjuþings - 1989, Blaðsíða 81
1989
20. Kirkjuþinq
7. mál
D R Ö G
að realuaerá Jöfnunarsióðs sókna
Flutt af Kirkjuráði
Frsm. sr. Jón Einarsson
1. gr.
Kirkjuráð hinnar íslensku þjóðkirkju hefur á hendi umsjá og
stjórn Jöfnunarsjóðs sókna og ber á honum ábyrgð gagnvart þeim
aðilum, er lög mæla fyrir um.
Embætti biskups fer með reikningshald sjóðsins.
Rikisendurskoðun endurskoðar bókhald sjóðsins.
2. gr.
Hlutverk Jöfnunarsjóðs sókna er eftirfarandi:
1. Að veita styrki til þeirra kirkna, sem sérstöðu hafa umfram
aðrar sóknarkirkjur. Er þá átt við Dómkirkjuna i Reykjavik,
Hóladómkirkju, Skálholtsdómkirkju, Hallgrímskirkju í
Reykjavik, Hallgrimskirkju i Saurbæ og Minningarkapellu sr.
Jóns Steingrimssonar.
Veita má styrki til rekstrar, viðhalds og endurbóta
nefndra kirkna, svo og til kaupa, endurnýjunar og viðhalds
á nauðsynlegum búnaði þeirra til viðbótar þeim styrkjum sem
veittir kunna að verða úr ríkissjóði.
Heimilt er að veita 20-30% af ráðstöfunarfé sjóðsins
til þessa liðar, enda liggi fyrir rökstudd greinargerð um
fjárþörf viðkomandi kirkna.
2. Að leitast við að ná sem mestum jöfnuði varðandi aðstöðu og
tekjur kirkna og styrkja sóknir, þar sem lögmæltar tekjur
skv. lögum um sóknargjöld nægja ekki fyrir nauðsynlegum
útgjöldum að dómi sóknarnefndar og sóknarprests og að
fenginni umsögn héraðsnefndar.
Auk framlags til rekstrar, viðhalds og endurbóta kirkna
er heimilt að veita sóknum styrki til byggingar kirkna og
nauðsynlegs búnaðar þeirra, svo og til þjónusturýmis og
safnaðarheimila, þar sem þeirra er þörf að dómi biskups og
héraðsnefndar.
Þegar sóknir hefja nýbyggingu kirkna eða aðrar dýrar
framkvæmdir og óska eftir stuðningi sjóðsins, skulu þær með
góðum fyrirvara senda Kirkjuráði og héraðsnefnd kostnaðar-
og framkvæmdaáætlun. Veita má greiðsluloforð til allt að
fjögurra ára. Heimilt er að veita 45-65% af
ráðstöfunartekjum sjóðsins til þeirra verkefna, er þessi
töluliður tekur til.
Heimilt er að veita styrki skv. þessum lið til að
greiða fyrir sameiningu fámennra sókna sbr. 3. gr. laga nr.
25/1985.
78