Són - 01.01.2008, Síða 21

Són - 01.01.2008, Síða 21
SÚLAMMÍT OG SIGRÚN VALKYRJA 21 hverju stigi átt meginþátt í varðveislu eddukvæðanna,24 eða a.m.k. að þær hafi þar verið jafnokar karla. En í okkar dæmi er karlmaður lík- legri til að búa yfir þekkingu á Ljóðaljóðunum, nógu náinni til að spegla orðalag þeirra í eigin verki. Líklegra líka að karlmanni verði gripið til bóklegrar fyrirmyndar þegar hann færist í fang að tjá heit- ustu tilfinningar syrgjandi valkyrju. Það kann jafnvel að vera honum nokkurt feimnismál að yrkja svo eldheitt fyrir munn konu, og þá viss afsökun að sjá hve feimnislaust sjálf heilög ritning leyfir sér að leika á strengi ástar og girndar, bæði af hálfu karls og konu. Þetta eru líkur, ekki vissa, ekkert útilokað að það sé kona sem með stoð í helgri bók lifir sig inn í hlutskipti valkyrjunnar. Engin vissa er það heldur að þetta gerist á Íslandi. Kviðan, eða sú gerð hennar sem lokakaflinn var skráður eftir, kynni að hafa borist til Íslands seint, annaðhvort frá Noregi sjálfum eða frá öðrum af- byggðum hans. Varðveislan bendir til Íslands, náttúran til Noregs, og kynnu þær vísbendingar að sameinast í víðförlum Íslendingi25 sem jafnvel hefði sótt sér kristilega menntun til annarra landa, komið heim biblíufastari en títt var, en tekið fagnandi endurfundunum við þjóð- legar menntir. Þetta er ekki kenning eða ályktun, aðeins nordölsk hugsmíð og má bregða upp sem einum möguleika af mörgum. Innanlands gat margur klerklærður maðurinn komist í tæri við Ljóðaljóðin á latínu og orðið þeim texta handgenginn. Jafnvel til í dæminu að maður – og þá alveg hugsanlega kvenmaður – sem ekki var latínulærður sjálfur, hafi stundað félagsskap þar sem sumir báru á borð latneskar menntir og aðrir þjóðlegar. Hugsum til skáldsins og höfðingjans Kolbeins Tumasonar sem (af pólitískum ástæðum, skul- um við segja) dvaldi vetrarlangt á Þingeyrum, væntanlega mest í félagsskap munkanna, og má ætla að kveðskapur hans um Jóhannes guðspjallamann sé ávöxtur þess samneytis. Annar maður gat hafa verið í svipuðum sporum sem ekki var dróttkvæðaskáld heldur iðk- andi eddukvæða, og hefði Helgakviða þá notið ávaxtanna. 24 Og annarra skyldra fræða; „eddu“-heitið sjálft gæti t.d. verið dregið af heimildar- mönnum úr röðum roskinna kvenna. 25 Sbr. ályktun Einars Ól. Sveinssonar í nmgr. 6.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160

x

Són

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Són
https://timarit.is/publication/1139

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.