Són - 01.01.2008, Blaðsíða 59

Són - 01.01.2008, Blaðsíða 59
SAGA MÍN ER SÖNN EN SMÁ 59 síðari ljóðabókar sinnar, Nokkur smákvæði, sem kom út árið 1913, hvort sem það var að ráði útgefanda eða hún hefur ekki treyst lesendum, sinni eigin kynslóð, fyrir því. Allt það sem að upp eg tel Ævikvæði Herdísar Andrésdóttur (1858–1939), „Kveðið við spuna“, birtist fyrst í þriðju útgáfu Ljóðmæla þeirra Ólínu tvíburasystur hennar árið 1976, að skáldkonunni löngu liðinni. Það er þrjátíu erindi undir rímnahætti eins og ævikvæði Unu, en betur kveðið og eins og mælt af munni fram. Í kvæðinu talar hún til barna og er yfirlýstur tilgangur þess að segja þeim hvað gaman sé að vinna. En kvæðið er ekki allt þar sem það er séð. Það lýsir hrikalegri vinnu kvenna sem varir ævilangt, endurtekur sig í sífellu og endar aldrei. Herdís er sjötíu og fimm ára þegar hún yrkir kvæðið og er það allt í senn ævikvæði, vinnukvæði, ellikvæði og afmæliskvæði.40 Í fyrstu erindunum bregður hún upp mynd af sjálfri sér þar sem hún situr við að spinna á rokk, gömul kona, slitin af erfiðisvinnu, og kveður við börn sem hún er sennilega að gæta:41 Þó mig gigtin þjái grimm og þunnan beri eg lokkinn, séð hafi árin sjötíu og fimm, sit eg enn við rokkinn. Þið, sem eruð ung og frá og engu viljið sinna, kvennatímaritinu Dropar árið 1927. Undirfyrirsögn er „Brot úr smásögu“, en sagan mun aldrei hafa verið lengri. Sjá einnig Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum 1945:165–169. 40 Afmælisljóð kvenna til sjálfra sín má telja sérkvenlega bókmenntagrein sem á sér ekki samsvarandi hliðstæðu í ljóðum karla. Þær yrkja um sig fimmtugar, sextugar, sjötugar, áttræðar og jafnvel fertugar og þrítugar. Þannig yrkir Ólöf frá Hlöðum um sig bæði fertuga og fimmtuga þar sem hana hryllir mjög við ellinni um leið og hún lítur yfir ónýta ævi sína framan af. Um afmælisljóð sjá nánar grein mína „Í kvöld er ég fimmtug“. 41 Herdís Andrésdóttir 1976:303. Það kemur ekki beint fram í kvæðinu að hún sé að gæta barnanna en með tilvísun til hefðarinnar má vel sjá það fyrir sér. Sbr. t.a.m. Steinunni Finnsdóttur sem yrkir svo til barna í þriðja mansöng „Hyndlurímna“: „Brag minn eignist börnin góð með bögum téðan, / siðlát, kyrr þau sitji á meðan.“ Steinunn Finnsdóttir 1950:23. Sbr. einnig Theodoru Thoroddsen um þulur sem „örþrifaráð“ kvenna til að hafa ofan af fyrir börnum meðan þær bæta flíkur og stoppa í sokka. Theodora Thoroddsen 1914:416.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160

x

Són

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Són
https://timarit.is/publication/1139

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.