Gerðir kirkjuþings - 2002, Side 8

Gerðir kirkjuþings - 2002, Side 8
Ávarp biskups íslands Karls Sigurbjömssonar Kirkjumálaráðherra, frú Sólveig Pétursdóttir, forseti Kirkjuþings, Jón Helgason, biskupar, heiðruðu kirkjuþingsfulltrúar, góðir gestir. Verið velkomin til Kirkjuþings 2002. Nú kemur nýkjörið þing saman, fulltrúar kjömir af söfnuðum landsins til setu næstu fjögur árin. Miklar breytingar em á þingliði. Er gleðilegt að sjá hve margar konur hafa valist til þings að þessu sinni. Konur hafa aldrei verið eins margar á Kirkjuþingi og nú. Ég vil þakka kirkjuþingsfulltrúum öllum fýrir að gefa kost á sér og að vilja taka þátt í að móta stefhu kirkjunnar og stýra málum hennar. Guð blessi ykkur og gefi að andi samstarfsvilja og góðvildar og umhugsunin um velferð kirkju Krists móti þingstörf og samskipti öll. Horfnir em af vettvangi þingmenn sem sett hafa svip sinn á þingstörf umliðinna ára. Þeim skal þakkað framlag þeirra. Þrír kirkjuráðsmenn em horfnir af Kirkjuþingi, Hallgrímur Magnússon er horfmn til starfa erlendis, Guðmundur K. Magnússon hlaut ekki endurkjör til Kirkjuþings og séra Hreinn Hjartarson sóttist ekki eftir endurkjöri og lætur senn af prestsembætti. Þeir tveir síðamefndu munu sitja þetta Kirkjuþing fram yfir kirkjuráðskjör, og er gott að fá enn að njóta góðra krafta þeirra. Ég þakka þeim öllum frábær störf í kirkjuráði og alla góða málafýlgju. Séra Bolli Gústavsson vígslubiskup á Hólum sagði embætti sínu lausu um sl. áramót af heilsufarsástæðum. Séra Bolli er kvaddur með virðingu og þökk. Kirkjuþing sendir honum og fjölskyldu hans hugheilar kveðjur. Séra Sigurður Guðmundsson, fýrmm vígslubiskup, mun gegna vígslubiskupsembættinu uns niðurstaða liggur fýrir í vígslubiskupskjöri. Gott er að fá enn að njóta hans að. Stefnumótun kirkjunnar Ég tel stefnumótun eitt mikilvægasta viðfangsefni Kirkjuþings að þessu sinni. Þökk sé þeim sem unnið hafa mikið starf að því að marka leiðimar í þessum efnum. Jafnffamt ályktun um að hefjast handa um stefnumótun kirkjunnar em þrjú stefhumarkandi mál til afgreiðslu þingsins, svonefndar deilistefnur. Það er starfsmannastefna Þjóðkirkjunnar, og svo ályktun um kirkju og skóla, og um öldmnarþjónustu sóknanna. Einnig er lögð fram sem fýlgiskjal með skýrslu Kirkjuráðs drög að tónlistarstefnu kirkjunnar. I stefnumótun er mikilvægt að greina styrk og veikleika, ógnanir og tækifæri í lífi og starfi Þjóðkirkjunnar og stöðu hennar í samfélaginu. Grandskoða þarf félagslega og andlega þætti trúar og kirkjustarfs og jafnframt að hefja upp framtíðarsýn. Ég vænti þess að sem allra flestir á vettvangi kirkju og þjóðlífs komi að verki við stefnumótun kirkjunnar og leggi fram sitt innsæi, reynslu og hugsjón. Kirkjuþing þarf að horfa fram og út til samfélagsins. Og það þarf að marka stefnu og forgangsraða í starfi kirkjunnar. Kirkjuþing þarf að horfa á strauma samtímans og meta hvert þeir bera íslenska menningu, þjóðlíf og kirkjuna. Prestastefna lagði afar mikilvæga vinnu að mörkum á s.l. sumri. Leikmannastefna verður helguð stefnumótun og eins þurfa prófastsdæmin og einstaka sóknir að koma að þessu starfí svo sjónarmið hinna mörgu komist að. 4

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.