Gerðir kirkjuþings - 2002, Blaðsíða 31

Gerðir kirkjuþings - 2002, Blaðsíða 31
Langamýri Ráðinn hefur verið nýr forstöðumaður á Löngumýri, Gunnar Rögnvaldsson, sem starfaði áður við Hólaskóla. Starfsemi á Löngumýri hefur aukist umtalsvert á árinu og gestafjöldi einnig. í sumar hófust framkvæmdir við nýja millibyggingu að Löngumýri þar sem elsta skólahúsnæðið stóð en það hafði verið úrskurðað ónýtt af byggingaryfirvöldum og var rifið. Nýbyggingin verður tæpir 200 fm. Samið var við Framkvæmdasýslu ríkisins um umsjón með verklegum framkvæmdum. Tilboði upp á 38 millj. var tekið í verkið en ekki liggur enn fýrir heildarkostnaður en má áætla að kostnaður verði u.þ.b. 50 millj. kr. Langamýri átti framkvæmdasjóð rúmar 20 millj. kr. sem verður nýttur í verkefni þetta. Tækifærið var nýtt til að breyta aðkomu gesta að staðnum en aðalinngangur verður eftirleiðis í nýja húsinu. Þá mun öll starfsaðstaða batna umtalsvert. Verkinu miðar vel áfram og verklok eru áætluð snemma á næsta ári. Fjölskylduþjónusta kirkjunnar Fjölskylduþjónustan hefur haldið uppi venjubundinni starfsemi. Aukist hefur að prestar og djáknar njóti handleiðslu á vegum stofnunarinnar, en Kirkjuráð hefur veitt sérstaklega fé til þess síðustu árin. Fjárhagur stofnunarinnar er þröngur enda hefur launakostnaður aukist á árinu eins og hjá öðrum stofnunum. Mikilvægt er að treysta fjárhagsgrundvöll stofnunarinnar til frambúðar. Vísast að öðru leyti til skýrslu stofnunarinnar sem fýlgir skýrslu þessari. Leikmannaskóli Þjóðkirkjunnar Leikmannaskólinn hefur endurskoðað námsframboð sitt og gefíð út að nýju kynningarbækling um starfsemina. Verkefnisstjóri sinnir daglegum rekstri skólans í íjórðungs starfshlutfalli. Skólinn er hýstur á Biskupsstofu og nýtur þjónustu þar eins og verið hefur. Kennsla fer fram víða um land. Tónskóli Þjóðkirkjunnar Stjóm og skólastjóri Tónskólans hafa unnið að stefnumótun hans og samningu námsskrár á árinu og er hvort tveggja lagt fram á Kirkjuþingi. Starfsmannahald skólans hefur tekið breytingum og hefur verið dregið úr því. Skal vísað til framangreindra gagna auk skýrslu skólans um starfsemina sem einnig er lögð fram. Tónskólinn er fluttur í nýtt húsnæði á neðri hæð Grensásskirkju. Gefur það kost á hagkvæmri samnýtingu m.a. á orgeli kirkjunnar auk annarrar aðstöðu. Strandarkirkja Strandarkirkjunefnd, sem áður er getið um, hefur unnið að málefnum kirkjunnar eftir að hún tók við stjóm hennar. I nefndinni em sr. Baldur Kristjánsson sóknarprestur í Þorlákshöfn, sr. Ulfar Guðmundsson, prófastur Eyrarbakka og Ragnhildur Benediktsdóttur, skrifstofustjóri á Biskupsstofu, sem er formaður nefndarinnar. Kirkjuráð hefur sett nefndinni sérstakt erindisbréf eins og fyrr segir. Ljóst er að mikið starf er framundan við framtíðarstefnumótun fýrir kirkjuna og landareignir hennar og skipulag allt. Vísast til skýrslu nefndarinnar fyrir þann skamma starfstíma sem hún hefur starfað. 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.