Gerðir kirkjuþings - 2002, Qupperneq 21
Afgreidd mál á Kirkjuþingi 2002.
Skýrsla kirkjuráðs
1. mál. Flutt af Kirkjuráði
I. Störf Kirkjuráðs
Kirkjuráð hefur haldið þrettán fundi ffá Kirkjuþingi 2001. Flestir fundanna voru á
Biskupsstofu. Einnig fundaði Kirkjuráð á Hólum og Löngumýri, í Skálholti, í Laxdalshúsi á
Akureyri, Vestmannsvatni og loks á ísafírði. í tengslum við þann fund heimsótti Kirkjuráð
presta og kirkjur á Vestfjörðum. Kirkjuráð bauð prestum prófastsdæmisins og héraðsnefnd til
fundar og til viðræðu um starf kirkjunnar í ísafjarðarprófastsdæmi.
Forseti Kirkjuþings, Jón Helgason, hefur setið marga Kirkjuráðsfundi á tímabilinu, enda mál
er varða Kirkjuþing oft á dagskrá. Formenn nefnda Kirkjuþings 2001 sátu einn fund ráðsins í
september þegar málaskrá og tilhögun og skipulag þingstarfa Kirkjuþings 2002 voru rædd.
Þá sátu varamenn í Kirkjuráði nokkra fundi ráðsins. Vígslubiskup í Skálholti hefur setið
fundi ráðsins þegar fjallað hefur verið um málefni Skálholtsstaðar. Á fundi Kirkjuráðs hafa
einnig komið fulltrúar djáknanefndar til viðræðu um málefni djákna, fulltrúi
Ríkisendurskoðunar til viðræðu um ábyrgðardeild í Jöfnunarsjóði sókna, og fulltrúi
Kirkjugarðasambands íslands til að kynna gjaldalíkan fyrir kirkjugarða, fulltrúar stjómar
Prestssetrasjóðs komu á fund og ræddu ijárhagslega stöðu sjóðsins o. fl. Fulltrúar Kirkjuráðs
fóm einnig á fund fjármálaráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra og ræddu fjármál
Þjóðkirkjunnar.
Sr. Bolli Gústavsson vígslubiskup á Hólum fékk lausn frá embætti frá og með 1. janúar 2001
að eigin ósk. Sr. Sigurður Guðmundsson, fyrrverandi vígslubiskup, hefur verið settur til að
gegna embætti vígslubiskups til loka yfirstandandi árs.
Dr. Hallgrímur Magnússon, kirkjuþings - og kirkjuráðsmaður, flutti til Noregs í september
s.l. og hefur Jóhann E. Bjömsson varamaður hans setið fundi Kirkjuráðs í hans stað.
Hallgrímur mun ekki sitja Kirkjuþing 2002.
Kirkjuráð hefur veitt fé til margra verkefna úr Kristnisjóði og Jöfnunarsjóði sókna auk þess
að sinna lögboðnum verkefnum sjóðanna. Nánari upplýsingar er að fmna í 2. máli
Kirkjuþings 2001, Fjármálum Þjóðkirkjunnar.
Úthlutun úr Jöfnunarsjóði sókna, Kirkjumálasjóði, Kristnisjóði og Fræðslu-, kynningar - og
útgáfusjóði, fer fram í desembermánuði vegna næsta árs. Umsóknir í Jöfnunarsjóð em sendar
öllum sóknamefndum og þykir því ekki þörf á að auglýsa úthlutun sérstaklega.
Samkvæmt lögum um ráðstafanir í ríkisfjármálum 2002 nr. 148/2001 vom skil á sóknar- og
kirkjugarðsgjöldum og framlögum til sjóða kirkjunnar skert. Kirkjuráð samþykkti
svohljóðandi ályktun sem send var Alþingi og fjölmiðlum:
Kirkjuráð átelur að hluti þjónustugjalda, þ.e. sóknargjalda og kirkjugarðsgjalda,
sem ríkið innheimtir fyrir Þjóðkirkjuna og önnur trúfélög, sé látinn renna í
ríkissjóð á sama tíma og kostnaður við þjónustuna eykst. Þetta skerðir til muna
fjárhagslegt sjálfræði Þjóðkirkjunnar.
17