Gerðir kirkjuþings - 2002, Side 30
28. mál 2002. Tillaga að þingsályktun um starfsreglum um brey’ting á starfsreglum um presta
nr. 735/1998
Kirkjuráð leggur mál þetta fram til kynningar. Þriggja manna nefhd sem skipuð var á
Kirkjuþingi 2001 skilaði af sér tillögum til Kirkjuráðs um breytta tilhögun við val á prestum
til embætta. Meginbreytingin er sú að fram fari kjör hjá sóknamefndum um umsækjendur um
laus sóknarprestsembætti og prestsembætti í stað vals eins og nú er.
IV. Stofnanir á vegum Kirkjuráðs
Skálholt og Skálholtsskóli
Kirkjuráð samþykkti árið 2001 að ráðast í viðbyggingu við Skálholtsskóla með 8
gistiherbergjum, auk lítillar fundarstofu og þvottaaðstöðu. Eitt nýju herbergjanna er
sérstaklega hannað fyrir fatlaða. Framkvæmdasýsla ríkisins annast um verklega framkvæmd
og var verkið boðið út. Upphafleg fjárveiting Kirkjuráðs gerði ráð fyrir 30 millj. kr. til
viðbyggingar við skólann. Eftir því sem undirbúningi verkefnisins miðaði og endanleg gerð
og hönnun, ásamt kostnaðaráætlun lágu fýrir, varð Kirkjuráði ljóst að endurskoða þyrfti fýrri
ákvarðanir um íjárveitingar og tímasetningar næstu byggingaráfanga. Kirkjuráð ák\'að því að
hækka fjárveitingu sem því nam til að reisa viðbyggingu sem uppfýllir allar samþykktar
óskir rekstraraðila, svo og lögbundnar kröfur til mannvirkja af þessu tagi. Heildarkostnaður
stefnir í að verða á sjötta tug millj. kr. Verklok eru áætluð í desember 2002. Kirkjuráð
samþykkti að taka lán allt að 50 millj. kr. til 10 ára með ábyrgð Jöfnunarsjóðs vegna þessara
framkvæmda.
Ýmsar aðrar framkvæmdir hafa verið á staðnum. Risið er sumarhús starfsmanna Kirkjugarða
Reykjavíkurprófastsdæmanna en úthlutað var lóð fýrir ofan Skálholtsbúðir samkvæmt
samþykktu skipulagi fýrir staðinn. Þá hafa verið gerðar endurbætur á gönguleið til búðanna.
A árlegum fundi Kirkjuráðs með vígslubiskupi, rektor og öðru starfsfólki í Skálholti ræddi
vígslubiskup m.a. nauðsyn þess að byggja við skólahúsið upplýsingamiðstöð og móttöku og
bókasafn með aðstöðu til rannsóknarstarfa. Þessar framkvæmdir frestast vegna þeirra
viðbyggingar við skólann sem áður var getið.
Rekstur Skálholtsskóla hefur styrkst og áhersla verið lögð á að vinna að því að afla ffekari
verkefna fýrir skólann. Styrkur fékkst úr Kristnihátíðarsjóði, kr. 1. millj. til að standa fýrir
samveru um “Miðlun reynsluarfsins”. Kyrrðardagar hafa verið vel sóttir, sérstaklega yfir
bænadagana. Vísað er til skýrslu rektors Skálholtsskóla sem fýlgir skýrslu þessari.
Kirkjuráð hefur gert samning við Fomleifastofnun íslands um fomleifarannsóknir í Skálholti.
Fomleifarannsóknir sem hófust í sumar munu standa yfir til 2007. Áætlaður heildarkostnaður
að mati Fomleifastofnunar er um 150 millj. kr. Kristnihátíðarsjóður styrkir þetta verkefni
sérstaklega. Kirkjuráð hefur gert samning við stofnunina um kostnaðarþátttöku kirkjunnar
vegna margháttaðs ffæðslu- og kynningarstarfs samfara uppgreftrinum. Verða veittar 2 millj.
kr. á árinu 2003 og 1 millj. kr. á ári eftir það meðan rannsóknin stendur yfír.
Á vegum Collegium Musicum er unnið að rannsóknarverkefni á fomri kirkjutónlist í
íslenskum handritum, ásamt rannsóknarstofu í helgisiðafræðum í Skálholti.
Menntamálaráðuneytið veitti 5 millj. kr. á þessu ári til verkefnisins.
Að öðm leyti er vísað til skýrslu vígslubiskups um Skálholtsstað sem fýlgir skýrslu þessari.
26