Gerðir kirkjuþings - 2002, Blaðsíða 27
22. mál 2001. Starfsreglur um breyting á starfsreglum um sóknarnefndir nr. 732/1998
Starfreglumar kveða á um “að bókhald sé fært í samræmi við lög og noti samræmt
reikningsform við uppsetningu ársreiknings, sem Kirkjuráð leggur til”. Málinu var vísað til
Kirkjuráðs. Starfshópur heíur unnið að gerð samræmds reikningsforms og hefur Kirkjuráð
samþykkt tillögumar. Hið samræmda reikningsform er lagt ffam til kynningar á Kirkjuþingi.
23. mál 2001. Frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 36/1993 um kirkjugarða, greftrun
líka og líkbrennslu
Kirkjuráð sendi dóms- og kirkjumálaráðherra málið eins og Kirkjuþing samþykkti það.
Breytingarlögin öðluðust gildi 1. maí 2002. Kirkjuráð leggur til að starfsreglum verði breytt
til samræmis við þessar lagabreytingar eins og nánar greinir í skýrslu þessari síðar.
24. mál 2001. Frumvarp til laga um breyting á lögum um stöðu, stjórn og starfshœtti
Þjóðkirkjunnar, nr. 78 26. maí 1997 (skipun presta)
Kirkjuþing taldi ekki tímabært að ráðast í þær breytingar sem frumvarpið fól í sér og kynnti
Kirkjuráð dóms- og kirkjumálaráðherra þá niðurstöðu Kirkjuþings.
25. mál 2001. Tillaga til þingsályktunar um skipun nefndar til að fjalla um reglur um val á
prestum
Kirkjuþing kaus nefnd til að fjalla um málið og skilar hún áliti sínu hér í sérstöku máli á
þessu þingi.
26. mál 2001. Tillaga tilþingsályktunar um kirkjuþingskosningar
Kirkjuráð skipaði nefnd til að fjalla um málið. Nefndin skilaði áliti sínu til Kirkjuráðs og er
það eitt af málum þessa Kirkjuþings.
III. Mál. Lögð fram á Kirkjuþingi 2002
1. mál. 2002. Skýrsla Kirkjuráðs ásamt greinargerðum, skýrslum og öðrum fylgigögnum
Skýrsla þessi er lögð fram á Kirkjuþingi 2002 í samræmi við 5. gr. starfsreglna um Kirkjuráð
nr. 817/2000. Með henni fylgja þau gögn sem tilskilið er og nánar er vikið að síðar.
2. mál 2002. Fjármál Þjóðkirkjunnar
Fjármál Þjóðkirkjunnar eru lögð ffam með sama hætti og á síðasta Kirkjuþingi að viðbættum
áætlunum til þriggja ára. Á síðasta Kirkjuþingi voru þau nýmæli tekin upp að dreifa öllum
ársreikningum stofnana og sjóða til kirkjuþingsfulltrúa.
6. mál 2002. Tillaga að starfsreglum um breyting á starfsreglum um vígslubiskupa nr.
820/2000
Tillagan sem var samþykkt á Kirkjuþingi 2001 er flutt öðru sinni í samræmi við 18. gr. laga
um stöðu stjóm og starfshætti Þjóðkirkjunnar nr. 78/1997. Samkvæmt henni falla Múla- og
Austfjarðaprófastsdæmi undir umdæmi vígslubiskups á Hólum.
Biskupafúndi þótti eðlilegt að óska eftir því við kjörstjóm að fresta kjöri um sinn meðan
Kirkjuþing hefði til umfjöllunar tilfærslu á umdæmum vígslubiskupa, þannig að
hlutaðeigandi kjósendur í prófastsdæmunum á Austurlandi gætu tekið þátt í kosningu
vígslubiskups. Kjörstjóm féllst á þá tillögu biskupafundar.
23