Gerðir kirkjuþings - 2002, Blaðsíða 22
Greinargerð Kirkjuráðs vegna frumvarps um ráðstafanir í ríkisfjármálum sem varð að
ffamangreindum lögum um ráðstafanir í ríkisfjármálum 2002, nr. 148/2001, fylgir skýrslu
þessari.
Fjármálahópur Kirkjuráðs hefur unnið að ýmsum verkefnum fjárhagslegs eðlis og m.a. unnið
að úrlausnum á fjárhagsvanda einstakra sókna. Hafa fulltrúar viðkomandi sókna og
lánardrottna mætt á fundi hópsins í nokkrum tilvikum. Eins hafa fulltrúar kirkjulegra
stofnana komið á fund hópsins. Það er mat Kirkjuráðs að störf fjármálahópsins séu mjög
þýðingarmikil enda skipa hópinn sérffæðingar á sviði fjármála, sem njóta mikils trausts.
Ákvarðanir Kirkjuráðs á þessu sviði eru því byggðar á traustum grunni þar sem meðferð
mála sem hópurinn hefur tekið að sér er fagleg og málsmeðferð vönduð.
í ljósi góðrar reynslu af störfum Qármálahópsins hefur Kirkjuráð ákveðið að skipa annan
starfshóp, hliðstæðan fjármálahópnum, sem mun starfa með Kirkjuráði að ýmsum löggjafar -
og starfsreglumálum. í hópnum verði formaður löggjafamefhdar Kirkjuþings,
kirkjuráðsmaður og fulltrúi biskups. Þeim hópi verður m.a. falið að skoða hvemig best væri
að standa að endurskoðun kirkjulöggjafar.
Kirkjuráði barst beiðni allsheijamefndar Alþingis um umsögn um ffumvarp til laga um
afnám gjalds á menn utan trúfélaga, 417. mál. Svar Kirkjuráðs er lagt fram með skýrslu
Kirkjuráðs.
Kirkjuráði barst beiðni allsheijamefndar Alþingis um umsögn um ffumvarp til laga um
breyting á lögum um kirkju- og manntalsbækur (sálnaregistur) nr. 3/1945.1 frumvarpinu sem
var samþykkt sem lög nr. 36/2002 er kveðið á um að íslenska þjóðkirkjan og önnur skráð
trúfélög skuli greiða fýrir kirkju- og manntalsbækur sem þau færa. Akveðið var að rita dóms-
og kirkjumálaráðherra erindi vegna málsmeðferðarinnar en fmmvarpið var ekki lagt ffam á
Kirkjuþingi eins og Kirkjuráð taldi lögskylt að gera, sbr. 4. mgr. 23. gr. laga um stöðu, stjóm
og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997. Bréf Kirkjuráðs og svarbréf dóms- og
kirkjumálaráðherra fylgja skýrslunni.
H. Afgreiðsla mála Kirkjuþings 2001
A síðasta Kirkjuþingi vom samþykktar ýmsar starfsreglur og hafa þær verið birtar í
Stjómartíðindum lögum samkvæmt. Sumum málum var vísað til Kirkjuráðs eða
biskupafundar. Skal gerð grein fýrir afgreiðslu þeirra mála:
I. mál 2001. Skýrsla Kirkjuráðs
Kirkjuráð hefur bmgðist við ályktun Kirkjuþings um skýrsluna eftir því sem tilefni gafst til.
Skal gerð grein fyrir því hér.
Kirkjuráð og forseti Kirkjuþings hafa rætt um undirbúning og meðferð þingmála í ljósi
reynslunnar af störfum þingsins á fyrsta kjörtímabili í nýju lagaumhverfi. Kirkjuráð tekur
undir að mikilvægt er að vanda allan undirbúning ekki síst með því að mál berist tímanlega
og ný mál hafi helst hlotið umfjöllun þeirra sem það varðar sérstaklega. I því sambandi hefur
Kirkjuráð hvatt til þess að héraðsfúndir verði haldnir að vori í samræmi við ályktun
Kirkjuþings og hafa margir héraðsfúndir nú þegar verið færðir fram. Héraðsfundir em
mikilvægur vettvangur við undirbúning og meðferð margra kirkjuþingsmála og ekki
óeðlilegt að kirkjuþingsmenn prófastsdæmisins kynni fyrirhuguð mál sín og leiti eftir
18