Gerðir kirkjuþings - 2002, Síða 11

Gerðir kirkjuþings - 2002, Síða 11
blasa við fjölskyldu þjóðanna, og það eru okkar vandamál, og viðfangsefni sem okkur ber siðferðileg skylda til að takast á við og leita lausna á af einbeitni og alvöru. Við skulum vera ffiðflytjendur og láta rödd okkar heyrast á alþjóðavettvangi. Rödd friðar gegn stríði. Stríð hafa svo oft verið háð til að tryggja frið. Það liggur ekkert fyrir um að friður verði í Mið-Austurlöndum þótt írak verði sprengt í tætlur. Öðru nær. Mestu varðar að skapa skilyrði fyrir þær aðstæður sem stuðla að réttlátum friði. Stríð við írak gæti gert vonir um slíkt að engu. Það gæti líka orðið vatn á myllu þeirra sem vilja ganga harðast gegn vestrænum, kristnum gildum. Kristnir menn í Mið-Austurlöndum, sem og annars staðar á áhrifasvæði íslam, eiga í vök að veijast. Margir óttast að árás á Irak verði til að þrengja kosti þeirra enn. Stjóm Lútherska heimssambandsins og Alkirkjuráðið og kirkjuleiðtogar austan hafs og vestan hafa varað við stríði og hvatt til þess að leitað verði áfram pólitiskra og diplómatískra leiða til að draga úr spennunni milli íraks og annarra þjóða. Við skulum taka undir með þeim, íslendingar, og vera málsvarar friðar. Biðjum fyrir friði. Hugsum um frið, tölum fyrir friði, leitum friðar, störfum í friði. “Sælir em friðflytjendur, því þeir munu Guðs böm kallaðir verða." Vemm í þeirra hópi, íslendingar. Boðberar og talsmenn friðar gegn hvers konar hemaðarhyggju og valdbeitingar heima og heiman. Skólinn og kirkjan í kvöld mun Kirkjuþing taka sér ferð á hendur austur á Eyrarbakka og minnast þar 150 ára afmælis bamaskólans og votta bamafræðslunni á Islandi virðingu sína og þökk. Við viljum þakka það mikla og góða starf sem unnið er í skólum landsins, sýna skólastarfínu samstöðu og biðja blessunar. Kirkja og skóli verða eitt umfjöllunarefna Kirkjuþings að þessu sinni. Kristinfræði er því miður allt of þröngur stakkur skorinn í grunnskólanum. Og það er áhyggjuefni að kristinfræði og trúarbragðafræði er ekki að finna í námsskrám framhaldsskólanna á Islandi. Þjóðkirkjunni er afar mikilvægt að marka sér stefnu varðandi það hvemig hún ætlar að bregðast við þessu. Hún þarf að móta sér stefnu um það hvemig hún vill vinna með skólanum og kennurum í kristnum fræðum og trúarbragðafræðum, svo þeir geti betur sinnt því að miðla þekkingu á kristnum trúar- og menningararfi og jafnframt að temja bömum og ungmennum umburðarlyndi gagnvart þeim sem sem hafa önnur lífsviðhorf. Það er mikilvægt að leggja áherslu á samhljóm kristni og þeirra gmnngilda sem við viljum meta mest: virðing fyrir manngildinu, mannúð og mildi. Þjóðkirkjan vill eiga samleið með skólum landsins í náinni samvinnu við heimilin að ræktun þessara gmnngilda. Boðun kirkjunnar Boðun kirkjunnar hefur verið til umræðu á sl. sumri þar sem athygli hefur vakið að prestar kvöddu sér hljóðs um brennandi mál samtíðar. Er það vel, þótt þetta sé síður en svo nýlunda. Það er nauðsynlegt að boðun kirkjunnar sé spámannleg er hún fjallar um uppblástur siðgilda, sundmn nærsamfélagsins, upplausn fjölskyldunnar, öfgakennda einstaklingshyggju, ofbeldisdýrkun og hömlulausa græðgi í samtímanum. Boðun kirkjunnar á að vera á bandi lífsins og tala máli þeirra sem halloka fara í samfélaginu. Boðandi kirkja á að vera spámannleg í boðun sinni, spámannleg í kærleika, og hún á að vera sjálfsgagnrýnin í kærleika. Það verður að fara saman, svo boðun hennar verði ekki dægurmálaspjall eða yfirborðsleg vandlætingarsemi, hljómandi málmur og hvellandi bjalla. Með boðun, prédikun sem sér og skilgreinir sameiginleg gildi og dyggðir, og bendir á og varar við löstum og synd er kristin kirkja að bera vitni um hið komandi ríki Guðs þar sem 7
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.