Gerðir kirkjuþings - 2002, Page 24
g. Efla þarf fræðslu- og menningartengda starfsemi í Skálholti, en margar nýjungar eru þar
á döfinni með nýjum rektor.
Fræðslu - og menningartengd starfsemi í Skálholti hefur stóraukist eins og sjá má af skýrslu
Skálholtsskóla sem fylgir skýrslu þessari. Þá eru fomleifarannsóknir hafhar og gerður hefur
verið samstarfssamningur Kirkjuráðs og Fomleifastofhunar íslands um þessar rannsóknir
næstu árin.
h. Fjárhagsnefnd styður þá stefnu Kirkjuráðs að veita ákveðnar jjárhæðir til
kirkjumiðstöðva, en að þær taki ábyrgð á rekstri sínum sjálfar að öðru leyti. Jafnframt sé
fylgst með ráðstöfun jjárins.
Kirkjuráð hefur unnið á grundvelli þessarar samþykktar og fýlgst með ráðstöfun fjárins.
Kirkjuráð samþykkti að mynda starfseyki þriggja manna til þess að gera tillögu til ráðsins um
skipan kirkjumiðstöðva og verkaskiptingu kirkjumiðstöðva, þ.m.t. hugsanleg
þjónustumiðstöð Þjóðkirkjunnar á höfuðborgarsvæðinu.
i. Sé greitt fyrir nefndarstörf á vettvangi kirkjunnar er æskilegt að greitt sé í samræmi við
gjaldskrá þóknananefndar.
Kirkjuráð hefur sent öllum hlutaðeigandi þ.m.t. héraðsnefndum prófastsdæmanna ábendingu
um þetta.
j. Skoðað verði hverjum beri að greiða bætur við val á sóknarpresti vegna úrskurðar
jafnréttisnefndar eða annarra aðila.
Skoðun dóms- og kirkjumálaráðuneytisins er að beri að greiða bætur, þurfi Þjóðkirkjan að
axla þær skyldur.
3. mál 2001. Starfsreglur um breyting á starfsreglum um skipan sókna, prestakalla og
prófastsdæma nr. 731/1998
Málinu var vísað til biskupafundar. Helstu nýmælin vom þau að tvö ný prestaköll vom
auglýst laus til umsóknar í sumar, Lindaprestakall í Kópavogi og Vallaprestakall í
Hafnarfirði og hafa þau bæði verið veitt. í ályktun Kirkjuþings var sérstaklega rætt um stöðu
Barðastrandarprófastsdæmis. Biskupafundur kannaði það mál og ræddi vígslubiskup í
Skálholti við kirkjulega aðila í prófastsdæminu. Biskupafundi þykir ekki ástæða til að svo
komnu máli að leggja til breytingar á stöðu prófastsdæmisins. Vísast að öðm leyti til 5. máls
á Kirkjuþingi 2002.
4. mál 2001. Starfsreglur um breyting á starfsreglum um rekstrarkostnað prestsembætta og
vegna prófastsstarfa nr. 819/1999
Kirkjuþing samþykkti hækkun á rekstrarkostnaði umffam það sem gert var ráð fýrir í
upphaflegri tillögu Kirkjuráðs og var hækkunin rúmlega 1 millj. kr. Fjárhagsnefnd hafði lagt
til að þessari hækkun yrði mætt með fjármunum sem sparast vegna niðurlagðra
prestsembætta.
5. mál 2001. Tillaga til þingsályktunar um starfsmannastefnu Þjóðkirkjunnar
Samþykkt var að tillaga að starfsmannastefnu yrði athuguð með hliðsjón af umræðum á
Kirkjuþingi og lögð fram að nýju á næsta Kirkjuþingi. Hún er eitt af málum Kirkjuráðs á
þessu þingi nokkuð breytt að uppsetningu og orðalagi.
20