Gerðir kirkjuþings - 2002, Side 37

Gerðir kirkjuþings - 2002, Side 37
Fjármál Þjóðkirkjunnar 2. mál. Flutt af Kirkjuráði. Að tillögu fjárhagsnefndar voru reikningar og fjárhagsáætlanir afgreidd með eftirfarandi umsögn: Fjárhagsnefnd fór yfir reikninga og fjárhagsáætlanir Þjóðkirkjunnar og sjóða hennar, þ.e. Kristnisjóðs, Kirkjumálasjóðs, Jöfnunarsjóðs sókna og Fræðslu-, kynningar- og útgáfusjóðs. Fjármálastjóri greiddi greiðlega úr spumingum nefndarmanna varðandi reikninga þessa og áætlanir, en nú er gerð áætlun um afkomu ársins 2003 og spá um afkomu 2004 og 2005. Einnig skoðaði nefndin aðra endurskoðaða reikninga kirkjustofnana og aflaði sér upplýsinga um rekstur nokkurra, eftir því sem hún taldi sig þurfa. Nefndin fékk á sinn fund vígslubiskup Skálholtsumdæmis, formann stjómar Fjölskylduþjónustu kirkjunnar, Guðmund K. Magnússon kirkjuráðsmann, tvo stjómarmenn Tónskóla Þjóðkirkjunnar, ffamkvæmdastjóra Hjálparstarfs kirkjunnar, framkvæmdastjóra Kirkjuráðs og skrifstofustjóra Biskupsstofu. Framangreindir aðilar leystu greiðlega úr spumingum nefndamanna og veittu nefndinni umbeðnar upplýsingar. Að fengnum þessum svömm og skoðun á gögnum varðandi fjármál Þjóðkirkjunnar vill fjárhagsnefnd vekja athygli á eftirfarandi atriðum: 1. Með þriggja ára rekstraráætlunum Þjóðkirkjunnar sem Kirkjuráð leggur ffam á Kirkjuþing fýlgi skýringar og forsendur um einstaka verkþætti sem áætlanimar taka til. 2. Kirkjuráð veiti stjóm Fjölskylduþjónustu kirkjunnar umboð til að taka upp að nýju samningaviðræður við prófastsdæmi, sveitarfélög og ríki um samstarf í fjölskylduþjónustu. 3. Kannaður verði möguleiki á að kirkjur leggi inn og ávaxti fé sitt í ábyrgðardeild Jöfnunarsjóðs sókna ef sömu kjör fengjust þar og á markaði. Innlagt fé yrði að vera bundið ákveðinn tíma, t.d. í 5 ár. Með því móti mætti styrkja ábyrgðardeildina og hækka ábyrgðargetu hennar. 4. Kirkjuráð kanni möguleika á breyttu fýrirkomulagi varðandi úthlutun fjár til kirkna úr Jöfnunarsjóði sókna. Um verði að ræða annars vegar óafturkræfan styrk og hins vegar lán sem verði afborgunarlaust ákveðinn árafjölda, beri ekki vexti en fjárhæðin verði háð breytingum á neysluverðsvísitölu. Sókn mun hefja greiðslu afborgana af láninu þegar hún er komin yfir verstu fjárhagserfiðleikana og Jöfnunarsjóður fái endurgreiddan hluta þess fjár sem með núverandi kerfi er varið í styrki. 5. Lögð verði áhersla á að gengið sé eftir skilum á skýrslum og ársreikningum sókna, héraðssjóða og þeirra aðila sem njóta styrkja úr sjóðum kirkjunnar. Sama á við um aðra starfsemi, svo sem kirkjumiðstöðvar, fræðslustarf o.fl. ó. Fáist ekki viðbótarframlag vegna rekstrarkostnaðar prestsembættis í London verður að leggja þjónustuna niður, þó Kirkjuþing hafi ríkan skilning á mikilvægi hennar. 33

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.