Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2012, Síða 68

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2012, Síða 68
68 á hugmyndafræði Elias, þá er það engu að síður svo að hugmyndir hans um hinn frumstæða miðaldamann höfðu gífurleg áhrif og mótuðu viðhorf fræðimanna sem og leikmanna til miðalda og má segja sem svo að enn eimi eftir af hugmyndunum um hinar frumstæðu miðaldir. Siðmenning var þannig beintengd við tilfinningalíf og þá ekki síst við þá athöfn að beisla eða bæla niður taumlausar tilfinningar. Nútímarannsóknir í taugalíffræði og lífefnafræði hafa hins vegar leitt í ljóst að slíkar hug- myndir um tilfinningar sem hvatir sem huganum beri að stjórna eru sjálfar söguleg hugmyndasmíð sem á sér ekki stoð í því flókna taugalíffræðilega kerfi sem liggur að baki tilfinningalífi manna.3 Ef horft er til miðalda- bókmennta með hliðsjón af slíkum hugmyndum, má gefa sér að þær til- finningar sem þar birtast endurspegli að einhverju leyti tilfinningalíf mið- aldamanna, en að þær séu engu að síður mótaðar af hugmyndum um eðli tilfinninga, venjum um framsetningu þeirra og menningarhlutverki þeirra í hverju samfélagi fyrir sig. Lesandi sem dregur fram Niflungakviðuna (Nibelungenlied), sem vitnað er í hér í upphafi greinar, nú 800 árum síðar, á ekki í neinum vandkvæðum með að túlka þær tilfinningar sem þar er lýst, jafnvel þó að sá menningarheimur sem kviðan vísar í sé honum víðs fjarri. Sá skilningur felst kannski einna helst í þeim eiginleika mannsins að túlka viðbrögð, orð og gjörðir í eigið hugmyndafræðilegt kerfi. Tilfinningar eru endurskapaðar í huga lesanda út frá hans eigin skilningi og skynjun á svipbrigðum, líkamstjáningu og yrðingum. Spurningin sem eftir stend- ur er hins vegar hvernig slíkum tilfinningum er miðlað? Hvernig getum við fjallað um tilfinningar í bókmenntum þegar tilfinningar eru taugalíf- fræðilegt fyrirbrigði sem tilheyrir mannslíkamanum en ekki, þegar upp er staðið, þeirri textalegu hugsmíð sem sögupersónur eru. Í þessari grein verður kannað hvernig tilfinningum í texta, þá sérstaklega miðaldatextum, er miðlað til nútímalesandans. Leitast verður við að greina hlutverk þeirra og framsetningu og gildi slíkrar nálgunar fyrir miðaldabókmenntir skoðað. 3 Rannsóknir innan taugalíffræði hafa á síðustu árum sýnt fram á að tilfinningar eru hluti af flóknu ferli sem felur meðal annars í sér skynjun og hugræna úrvinnslu eða mat á aðstæðum. Sá fræðimaður sem hefur einna helst átt þátt í að afbyggja hugmyndir um aðskilnað líkama og hugar, þegar tilfinningaupplifun á í hlut, er heila- og taugafræðingurinn Antonio damasio. Bók hans, Descartes’ Error. Emotion, Reason and the Human Brain (London: Vintage Books, 2006), byggir meðal annars á þeirri grundvallarkenningu að tilfinningar séu nauðsynlegur þáttur í því hugræna ferli sem liggi til grundvallar rökhugsun. Tilfinningar séu því ekki hvatir sem þurfi að bæla eða hemja til að rökleiðsla geti átt sér stað, heldur séu þær þvert á móti forsenda rökhugsunar og ákvarðanatöku. Sif RíKhaRðSdóttiR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.