Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2012, Page 135

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2012, Page 135
135 en það breytir ekki því að slík hugartæki til skilnings á tilteknum þáttum umheimsins eru ráðandi í hugfræði samtímans.21 Kant gerði ekki ráð fyrir að beiting hugartækja,22 svo sem tíma og rúms, færi á nokkurn hátt fram með meðvituðum hætti og er sú skoðun sambærileg við samtímakenningar um hugarstarf og skynjun, þar sem gert er ráð fyrir því að verkan þessara hugartækja sé óaðgengileg skynseminni (e. cognitively impenetrable).23 Þekkingarfræði Kants í heimspekisögulegu ljósi Kant setti byltingarkenndar hugmyndir sínar ekki fram í tómarúmi. Líklega var hann þó fyrstur til að gera grein fyrir hugmyndum af þessu tagi í heild- stæðu kenningakerfi. descartes velti til dæmis fyrir sér skilunum á milli hlutverka hugar og skynfæra við öflun þekkingar en lausnir hans á þessum þekkingarfræðilegu vandkvæðum voru ekki fullnægjandi. Rekja má hug- hyggju í anda Kants allt aftur til forngrísku heimspekinganna. Það er vel þekkt að Platón taldi að við ættum einungis kost á óbeinum tengslum við raunveruleikann,24 og því svipar til kenninga Kants. Fræg hellislíking Platóns er til vitnis um það. Kant var hins vegar ósammála Platóni um afleiðingar þessa – hvað það þýðir að fangarnir í hellinum sjái einungis skuggamyndir atburða utan hans. Kant hefði ekki tekið undir það að mynd okkar af heiminum sé tálsýn. Skoðun hans var sú að við gætum aldrei öðl- ast þekkingu á heiminum nema út frá okkar eigin sjónarhorni. Einnig er rétt að nefna að Aristóteles fjallaði um það sem hann nefndi sameiginlegt skynfæri sem hefði það hlutverk að samþætta upplýsingar frá mismunandi skynfærum; erfitt er að túlka það öðruvísi en sem skilninginn sem túlkar áreiti.25 Á eftir fornöld komu hinar myrku miðaldir í Evrópu en í kalífadæmum Austurlanda nær varðveittist þekking Forngrikkja, þar sem bætt var við hana. Þannig var framlag Alhazen (arab. Ibn Al-Haytham) til þekking- 21 Meðal annars má nefna Steven Pinker, How the Mind Works, New York: W.W. Norton & Company, 1997; Jerry Fodor, The Modularity of Mind; donald Hoff- mann, Visual Intelligence: How we create what we see, New York: W.W. Norton, 1998; Árni Kristjánsson, „Rapid learning in attention shifts – A review“, Visual Cognition 13/2006, bls. 324–362. 22 Hér gerir höfundur ekki skýran greinarmun á hugartækjum og hugkvíunum sem Kant fjallaði um í Gagnrýni hreinnar skynsemi. 23 Sjá t.d. Fodor, Modularity of mind; Árni Kristjánsson, Innra augað. 24 Sjá t.d. Platón, Ríkið, fyrra bindi, 157–160. 25 Sjá Aristóteles, Um Sálina, þýð. Sigurjón Björnsson, Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag, 1985. ÞEKKINGARFRÆðI KANTS
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.