Peningamál - 01.11.1999, Qupperneq 8

Peningamál - 01.11.1999, Qupperneq 8
• Hækkun meðallauna á milli áranna 1999 og 2000 nemi 6½%. Þessi hækkun felur í sér áhrif væntan- legra kjarasamninga að viðbættum launabreyting- um sem þegar hefur verið samið um á almennum markaði og launaskriði (2% árið 1999 og 1½% árið 2000). • Framleiðni aukist um 2½% árið 1999 og 2% árið 2000 • Innflutningsverðlag í erlendri mynt hækki um 3½% árið 1999 og 1½% árið 2000 Vegna þess að kjarasamningar standa nú fyrir dyrum hjá þorra launþegasamtaka eru forsendur spárinnar um launaþróun bundnar mikilli óvissu. Verði samspil launa- og gengisþróunar með öðrum hætti en gefið er í spánni gæti niðurstaðan ýmist orðið betri eða verri. Til dæmis myndi 1½% hækkun gengis á næstu mánuðum, miðað við forsendur spárinnar, ásamt 1% minni launahækkun leiða til rúmlega 1% minni hækkunar neysluverðs yfir næsta ár. Þróun kaupmátt- ar yrði í því tilfelli nánast hin sama. Einnig má hugsa sér óhagstæðara samspil gengis og launaþróunar er hefði í för með sér töluvert meiri verðbólgu en Seðlabankinn spáði. Forsenda þess að svo verði ekki er að ofþensla hjaðni á næsta ári. Mikið veltur einnig á hver verður verðþróun þeirra sérstöku þátta sem keyrt hafa upp verðbólgu á þessu ári. Í verðbólguspá Seðlabankans er gengið út frá því að dragi úr hækkun húnæðisverðs til ársloka en að markaðsverð húsnæðis hækki nokkuð á ný á fyrstu mánuðum næsta árs. Í ljósi þess að raunverð íbúðar- húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu er nú þegar orðið jafnhátt og í fyrri toppum verður að telja líklegt að a.m.k. dragi úr verðhækkunum. Húsnæðisliður vísi- tölu neysluverðs stóð í stað í nóvember. Mikilvægt er að ná tökum á verðbólgunni á ný áður en hærri verðbólguvæntingar festast í sessi. Væntingar hafa að jafnaði verið um nokkuð meiri verðbólgu en Seðlabankinn hefur spáð. Munur væntrar og mældrar verðbólgu hefur verið enn meiri því Seðlabankinn hefur á undanförnum árum þar til í 7 Samanburður á verðbólguspám miðað við mismunandi forsendur 1998:1 1998:2 1998:3 1998:4 1999:1 1999:2 1999:3 0,0 0,5 1,0 1,5 2,0 -0,5 % Raunveruleg verðbólga Raunveruleg verðbólguspá Spá með réttum forsendum Mynd 4 Tafla II Nokkrar forsendur í janúarspá Seðlabankans og raunveruleg þróun Forsenda Launaskrið Framleiðni Gengisþróun Innflutningsverð Húsnæðisverð Bensínverð Staða í nóvember Mat óbreytt Mat óbreytt Gengi krónunnar hækkaði um 2,8% frá áramótum til 10. nóvember Reiknað er með 3,5% hækkun 1999. Markaðsverð húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu hækk- aði um 17% frá áramótum til september og húsnæðis- liður vísitölu neysluverðs um 12,5% frá áramótum til nóvember Bensínverð í smásölu hækkaði um 26% frá janúar til október en 21,6% til nóvember. Verð á alþjóðlegum markaði hefur meira en tvöfaldast frá því í mars. Í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins frá október er reikn- að með 27% hækkun olíuverðs í SDR milli 1998 og 1999 Janúarspá Gert var ráð fyrir 2% launaskriði 1999 Gert var ráð fyrir 2,5% framleiðniaukningu 1999 Reiknað var með óbreyttu gengi frá 15. janúar Gert var ráð fyrir 1% lækkun fyrri hluta ársins en 1% hækkun síðustu níu mánuði þess. Gert var ráð fyrir að hækkun markaðsverðs hús- næðis myndi stuðla að meiri hækkun neysluverðs en ella. Ekki var tekið sérstaklega tilliti til bensínverðs- þróunar. Í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem birt var í maí, var enn gert ráð fyrir 9% lækkun olíuverðs í SDR milli 1998 og 1999.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69

x

Peningamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.