Peningamál - 01.11.1999, Blaðsíða 47
hafi til loka árs 1999 yrði 2,8%. Spáð var að verðlag
á öðrum ársfjórðungi myndi hækka um 1,0% eða
4,2% á ársgrundvelli.
Júní
Hinn 21. júní hækkaði Seðlabanki Íslands vexti
bankans í viðskiptum við lánastofnanir um 0,5 pró-
sentustig.
Hinn 25. júní var gengisskráningarvog breytt vegna
árlegrar endurskoðunar í ljósi samsetningar utan-
ríkisviðskipta á árinu 1998.
Hinn 29. júní veitti Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið
Verðbréfaþingi Íslands hf. starfsleyfi til kauphall-
arstarfsemi frá og með 1. júlí.
Bandaríska matsfyrirtækið Moody´s Investors
Service gaf Búnaðarbanka Íslands hf. einkunnina A-
3 fyrir langtímaskuldbindingar, Prime-2 fyrir skamm-
tímaskuldbindingar og D fyrir fjárhagslegan styrk.
Júlí
Hinn 1. júlí var gerð breyting á samsetningu úrvals-
vísitölu Verðbréfaþings Íslands. Úrvalsvísitalan er
uppfærð tvisvar á ári á þann hátt að af þeim 20 félög-
um á aðallista þingsins sem tíðust viðskipti hafa
orðið með á næstliðnum 12 mánuðum mynda þau 15
sem eru stærst að markaðsverðmæti í lok tímabilsins
úrvalsvísitöluna næstu sex mánuði.
Hinn 22. júlí birti Seðlabanki Íslands verðbólguspá
sem gerði ráð fyrir að meðalhækkun verðlags yrði
3,0% milli áranna 1998 og 1999 en hækkun frá upp-
hafi til loka árs 1999 yrði 4,0%. Spáð var að verðlag
á þriðja ársfjórðungi myndi hækka um 1,3% eða
5,2% á ársgrundvelli.
Ágúst
Útgáfu Economic Statistics var hætt.
September
Útgáfu Hagtalna mánaðarins var hætt. Í stað þeirra
og Economic Statistics verður hafin útgáfa ársfjórð-
ungsrits á íslensku og ensku. Heiti ársfjórðungsrits-
ins á íslensku verður: Peningamál: Ársfjórðungsrit
Seðlabanka Íslands, en á ensku: Quarterly Monetary
Bulletin.
Íbúðalánasjóður seldi húsnæðisbréf að fjárhæð 2,0
milljarðar króna úr flokkunum BN20-0101 og
BN38-0101.
Hinn 15. september tilkynnti Lánasýsla ríkisins, að
beiðni fjármálaráðherra, um fyrirhuguð uppkaup og
fækkun markflokka ríkisverðbréfa.
Hinn 20. og 21. september hækkaði Seðlabanki
Íslands vexti bankans í viðskiptum við lánastofnanir
um 0,6 prósentustig.
Kreditkort hf. fékk starfsleyfi sem lánastofnun á
grundvelli laga um lánastofnanir aðrar en viðskipta-
banka og sparisjóði (lög nr. 123, 1993).
Október
Hinn 25. október birti Seðlabanki Íslands verðbólgu-
spá sem gerði ráð fyrir að meðalhækkun verðlags
yrði 3,3% milli áranna 1998 og 1999 en hækkun frá
upphafi til loka árs 1999 yrði 4,6%. Spáð var að
verðlag á fjórða ársfjórðungi myndi hækka um 1,0%
eða 4,1% á ársgrundvelli.
46