Peningamál - 01.11.1999, Side 46
Janúar
Samkvæmt lögum nr. 87/1998 um opinbert eftirlit
með fjármálastarfsemi tók ný stofnun, Fjármálaeftir-
litið, til starfa 1. janúar. Fjármálaeftirlitið tók við
hlutverki bankaeftirlits Seðlabanka Íslands og Vá-
tryggingareftirlits.
Um áramótin var Verðbréfaþingi Íslands breytt úr
sjálfseignarstofnun í hlutafélag. Formbreytingin er
liður í að uppfylla kröfu laga um starfsemi kauphalla
og skipulegra tilboðsmarkaða nr. 34/1998 sem sett
voru í apríl 1998.
Íbúðalánasjóður seldi húsnæðisbréf að söluverðmæti
2,4 milljarðar króna, salan skiptist jafnt á milli flokk-
anna BN20-0101 og BN38-0101.
Bandaríska matsfyrirtækið Moody's Investors
Service gaf FBA lánshæfiseinkunnina A-3 á skuld-
bindingar til langs tíma, P-2 á skuldbindingar til
skamms tíma og D fyrir fjárhagslegan styrk.
Hinn 15. janúar birti Seðlabanki Íslands verðbólgu-
spá sem gerði ráð fyrir að meðalhækkun verðlags
yrði 1,9% milli áranna 1998 og 1999 en hækkun frá
upphafi til loka árs 1999 yrði 2,2%. Spáð var að
verðlag á fyrsta ársfjórðungi myndi hækka um 0,6%
eða 2,2% á ársgrundvelli.
Hinn 28. janúar birti Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn
(IMF) álit sendinefndar sinnar á íslensku efnahags-
lífi. IMF spáir 5,6% hagvexti á þessu ári og 4,7% á
næsta ári. Gert er ráð fyrir 3,5% verðbólgu á þessu
ári og 3,2% á því næsta.
Febrúar
Hinn 18. febrúar tóku gildi reglur um viðskipti bindi-
skyldra lánastofnana við Seðlabanka Íslands. Þær
komu í stað reglna um útreikning og færslu vaxta
o.fl. við Seðlabanka Íslands í viðskiptum við bindi-
skyldar stofnanir.
Hinn 18. febrúar undirrituðu aðilar að Verðbréfaþingi
Íslands hf. samkomulag um bætur og uppgjör
viðskipta á Verðbréfaþingi Íslands hf.
Hinn 23. febrúar voru vextir í viðskiptum Seðla-
bankans við lánastofnanir hækkaðir um 0,4 prósentu-
stig.
Hinn 23. febrúar tilkynnti bankastjórn Seðlabankans
um setningu reglna um laust fé bindiskyldra lána-
stofnana. Reglurnar tóku gildi 21. mars 1999.
Mars
Hinn 29. mars tóku gildi nýjar reglur um laust fé
bindiskyldra lánastofnana og komu þær í stað reglna
sem höfðu tekið gildi 21. mars 1999. Helstu breyt-
ingar eru að aðlögunartími að reglunum er lengdur
um einn mánuð og verður fjórir mánuðir. Leyfilegt
lausafjárhlutfall á fyrsta tímabili lækkaði í -12% og
mun hækka um 3 prósentustig mánaðarlega uns það
verður 1,5% þegar reglurnar taka að fullu gildi
21. júlí 1999. Fyrsta útreikningstímabil samkvæmt
breyttum reglum er frá 21. mars til 20. apríl 1999.
Apríl
Íbúðalánasjóður seldi húsnæðisbréf að söluverðmæti
2,2 milljarðar króna, salan skiptist jafnt á milli flokk-
anna BN20-0101 og BN38-0101.
Hinn 21. apríl birti Seðlabanki Íslands verðbólguspá
sem gerði ráð fyrir að meðalhækkun verðlags yrði
2,4% milli áranna 1998 og 1999 en hækkun frá upp-
45
Annáll fjármálamarkaða
Janúar-október 1999