Peningamál - 01.05.2009, Page 11
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
9
•
2
11
II Ytri skilyrði og útflutningur
Hagvaxtarhorfur í heiminum hafa farið stöðugt versnandi frá árslokum
2008. Áhrif fjármálakreppunnar hafa komið fram í raunhagkerfinu með
minnkandi neyslu og framleiðslu. Efnahagslægð sem hefur orðið sam-
tímis um allan heim hefur leitt til lækkandi hrávöruverðs og minnkandi
verðbólgu og einnig átt sinn þátt í lækkandi hlutabréfaverði. Veruleg
röskun á framboði lausafjár til fjármögnunar milliríkjaviðskipta hefur
haft skaðleg áhrif á alþjóðaviðskipti. Í stað ótta við aukna verðbólgu
samfara samdráttarskeiði á síðasta ári óttast menn nú verðhjöðnun. Í
sumum ríkjum, t.d. á Írlandi, í Japan og Bandaríkjunum, hefur verðlag
þegar lækkað milli ára, en í öðrum, t.d. á evrusvæðinu, er verðbólga
nálægt núlli. Vegna versnandi horfa í heimsbúskapnum er meiri óvissa
um útflutningsdrifinn efnahagsbata á Íslandi. Ennfremur lækkar verð
á helstu útflutningsafurðum og því munu viðskiptakjör versna. Lægra
raungengi mun þó að nokkru bæta þetta upp þar sem samkeppnis-
staða útflutningsatvinnuveganna hefur batnað.
Djúp efnahagslægð samtímis um allan heim ...
Frá útgáfu Peningamála í janúar hafa efnahagshorfur í heiminum
versnað til muna. Heimsbúskapurinn er í djúpri efnahagslægð og allar
vonir um að nýmarkaðs- og þróunarríki kæmust hjá niðursveiflunni
hafa gufað upp. Fjölmörg ríki hafa snúið sér til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
og sótt um neyðaraðstoð.
Framleiðsla dróst saman milli ára í flestum stærri iðnríkjum á síð-
asta fjórðungi ársins 2008, allt frá 0,8% í Bandaríkjunum og nálægt
2% á evrusvæðinu og í Bretlandi til hvorki meira né minna en 4,6%
í Japan. Svipaður samdráttur varð einnig á Norðurlöndum, á bilinu
2,4% í Finnlandi til 4,9% í Svíþjóð. Undantekningin er Noregur þótt
hagvöxtur væri aðeins 0,4% á síðasta fjórðungi ársins 2008 miðað
við sama tíma árið áður. Á fyrsta fjórðungi þessa árs dróst verg lands-
framleiðsla í Bandaríkjunum enn frekar saman, eða um 2,6%, og eins
í Bretlandi, en þar var samdrátturinn 4,1%.
Haldið er áfram að endurskoða spár fyrir þetta ár niður á við og
horfur eru á því að samdrátturinn magnist. Þess er vænst að lands-
framleiðsla í OECD-löndunum í heild dragist saman í fyrsta sinn frá
því í síðari heimsstyrjöldinni, en að heimsframleiðslan, eins og OECD
skilgreinir hana, dragist saman um 2,7% árið 2009. Samkvæmt skil-
greiningu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á samdráttarskeiði, þ.e. minni
vöxtur heimsframleiðslu en 3% á ári, er slíkt samdráttarskeið hafið.
Í spá OECD er gert ráð fyrir að heimsframleiðslan taki smám saman
aftur við sér árið 2010. Meðal helstu viðskiptalanda Íslands verður
samdrátturinn enn meiri eða 4,4% í ár.
Samkvæmt spá OECD verða afleiðingar þessa samdráttarskeiðs
þó ekki eins í öllum löndum. Þess er vænst að Japan verði einna verst
úti þar sem framleiðsla muni dragast saman um 6,6% í ár og 0,5%
2010. Önnur stór hagkerfi innan OECD eru ekki langt á eftir, þar sem
búist er við að framleiðsla í Bandaríkjunum, Bretlandi og á evrusvæð-
inu dragist saman um u.þ.b. 4% í ár. Þess er vænst að framleiðsla í
þessum löndum verði álíka mikil á næsta ári og í ár.
Heimild: Reuters EcoWin.
Breyting frá sama ársfjórðungi á fyrra ári (%)
Mynd II-1
Hagvöxtur
Magnbreyting VLF 1. ársfj. 2003 - 1. ársfj. 2009
Bandaríkin
Evrusvæðið
Bretland
Japan
-6
-4
-2
0
2
4
6
200820072006200520042003
Heimild: Consensus Forecasts.
Mynd II-2
Hagvaxtarspár fyrir 2009
Súlurnar sýna hvenær spáin er gerð
Breyting frá sama ársfjórðungi á fyrra ári (%)
2008 1. ársfj.
2008 2. ársfj.
2008 3. ársfj.
-8
-6
-4
-2
0
2
4
JapanEvrusvæðiðBandaríkin
2008 4. ársfj.
2009 1. ársfj.
Apríl 2009