Peningamál - 01.05.2009, Síða 40

Peningamál - 01.05.2009, Síða 40
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 0 9 • 2 40 við sama tíma árið áður. Fækkun vinnustunda stafaði bæði af fækkun meðalvinnustunda í viku og fækkun fólks við vinnu í viðmiðunarvik- unni. Aðeins yngstu starfsmennirnir yfirgefa vinnumarkaðinn … Viðbrögðin við minnkandi eftirspurn eru nokkuð mismunandi eftir ald- urshópum. Minnkandi atvinnuþátttaka yngsta aldurshópsins (16–24 ára), líklega að stórum hluta námsmenn, skýrir að fullu 1,5 prósentum minni atvinnuþátttöku á fyrsta fjórðungi ársins 2009. Þessi hópur hverfur því af vinnumarkaði, eins og venja er þegar eftirspurn eftir vinnuafli minnkar. Kjarni vinnuaflsins, þ.e. aldurshópurinn 25–54 ára, hverfur hins vegar ekki af vinnumarkaðnum þegar hann missir atvinn- una heldur skráir sig atvinnulausan. Fækkun starfandi um 5% milli ára skýrist næstum að fullu af fækkun karla meðal starfandi. Fækkun yngsta launafólksins meðal starfandi skýrir rúmlega 40% af fækk- uninni, sem er mun hærra hlutfall en 14% hlutdeild þess af starfandi fólki, en hlutur launafólks á aldrinum 25–54 ára var rétt undir hlutdeild þess (60%). Niðurstöðurnar staðfesta einnig að minnkandi eftirspurn hefur að nokkru verið mætt með því að fleira fólk vinnur hlutastarf þar sem rúmlega 4% fleiri starfsmenn voru í hlutastarfi á fyrsta fjórðungi ársins 2009 en á sama ársfjórðungi 2008. Heimild: Hagstofa Íslands. Mynd VI-3 Breyting á fjölda starfandi Breyting frá fyrra ári (%) Karlar Konur Samtals -10 -8 -6 -4 -2 0 2 4 6 8 10 ‘0920082007200620052004 Rammagrein VI-1 Atvinnuleysi í fjármálakreppum og heimssamdrætti 1. Nýjasti mánuður sýnir marstölur fyrir öll lönd nema janúartölur fyrir Bretland. Heimildir: Reuters EcoWin, Vinnumálastofnun. Mynd 1 Atvinnuleysi1 % af mannafla Fyrir tveimur árum (v. ás) Nýjasti mánuður (v. ás) Breyting (h. ás) Prósentur 0 2 4 6 8 10 12 14 16 18 20 0 2 4 6 8 10 12 14 16 18 20 BandaríkinBretlandSpánnÍrlandÍsland Rannsóknir sýna að jafnan er mikill munur á efnahagslægðum sem tengjast fjármálakreppum og þeim sem tengjast öðrum áföllum.1 Efnahagslægðir sem tengjast fjármálakreppum eru alvarlegri og langvinnari en efnahagslægðir sem tengjast áföllum af öðrum toga og bati eftir fjármálakreppur vill verða hægari. Í kjölfar fjár- málakreppu er líklegt að vöxtur einkaneyslu verði veikari en þegar hagkerfi eru að ná sér eftir annars konar áföll og fjárfesting heldur áfram að dragast saman eftir að botni efnahagslægðarinnar er náð meðan verið er að færa efnahagsreikninga heimila og fyrirtækja í fyrra horf og tryggja eðlilegan aðgang að lánsfé. Atvinnuleysi heldur því áfram að aukast umfram það sem gerist í efnahagslægðum af öðrum toga og gerir það jafnvel mun fyrr í niðursveiflunni. Oft er verulegur munur á efnahagslægðum sem verða á sama tíma í ýmsum löndum og öðrum efnahagslægðum. Efnahagslægðir sem fylgjast að eru dýpri og langvinnari en þær sem takmarkast við einstök svæði eða lönd og batinn veikur, sérstaklega vegna þess að útflutningur getur aðeins gegnt takmörkuðu hlutverki í batanum. Efnahagslægðir sem tengjast bæði fjármálakreppum og heimssam- drætti eru afar fátíðar, en þær eru jafnan alvarlegar og langvinnar. Atvinnuleysishorfur í samanburði við reynslu af öðrum fjármálakreppum Niðursveiflan á Íslandi nú tengist mikilli fjármálakreppu og efnahags- samdrætti sem verður samtímis um allan heim. Því er líklegt að hún verði óvenjulega mikil og gera má ráð fyrir að batinn verði hægur. Raunhagkerfið hefur þegar brugðist hart við, eins og sjá má af hrað- vaxandi atvinnuleysi og öðrum hagvísum. Atvinnuleysi hefur þegar aukist um næstum 8 prósentur frá því í september 2008. 1. International Monetary Fund, (2009). „From Recession to Recovery: How Soon and How Strong?“, 3. kafli í World Economic Outlook, apríl 2009, bls. 103–138.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.