Peningamál - 01.05.2009, Blaðsíða 70
ANNÁLL
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
9
•
2
70
Hinn 22. desember voru samþykkt á Alþingi fjárlög fyrir árið 2009.
Tekjur eru taldar lækka um 19,5% á föstu verði miðað við fjáraukalög
2008 en gjöld hækka um 10,5%. Flestir tekjuliðir lækka verulega vegna
samdráttarins en útgjaldaaukinn á föstu verðlagi er fyrst og fremst í
vaxtagjöldum. Gjöld án vaxta hækka um 0–0,5% að raungildi.
Hinn 29. desember gaf félags- og tryggingamálaráðherra út reglugerðir
um hækkun bóta, styrkja og frítekjumarks árið 2009 og nam hækkunin
9,6%. Lágmarksframfærslutrygging lífeyrisþega hækkaði um 20%.
Hinn 31. desember tilkynnti fjármálaráðuneytið að staðgreiðsluhlut-
fall tekjuskatts og útsvars yrði 37,2% á árinu 2009 í stað 35,72% árið
2008 en persónuafsláttur hækkaði um 24% og skattleysismörk um
19%. Meðalútsvar hækkaði úr 12,97% í 13,1% og tekjuskattshlutfall
úr 22,75% í 24,1%.
Janúar 2009
Hinn 1. janúar var starfsemi fl ugmálastjórnar á Kefl avíkurfl ugvelli
og fl ugstöðvar Leifs Eiríkssonar sameinuð sem opinbera hlutafélagið
Kefl avíkurfl ugvöllur ohf.
Hinn 2. janúar var skráningu vísitölu gengisskráningar hætt. Í stað þess
var vísitala meðalgengis með þröngri viðskiptavog endurreiknuð þann-
ig að 2. janúar taki hún sama gildi og vísitala gengisskráningar.
Hinn 6. janúar lýsti ríkisstjórnin yfi r að hún hygðist kanna til þrautar
möguleika á að leita réttar Íslendinga fyrir Mannréttindadómstóli Evr-
ópu vegna beitingar breskra stjórnvalda á svonefndum hryðjuverka-
lögum frá árinu 2001 gegn Landsbankanum á síðasta ári. Ríkisstjórn-
in ítrekaði jafnframt að hún myndi styðja við málsókn skilanefndar
Kaupþings vegna framgöngu breska fjármálaeftirlitsins gegn Singer &
Friedlander, dótturfyrirtæki Kaupþings, hinn 8. október 2008. Ríkis-
stjórnin mun einnig styðja við málsókn skilanefndar Landsbankans í
hugsanlegum málaferlum gegn breskum stjórnvöldum.
Hinn 8. janúar tilkynnti alþjóðlega lánshæfi smatsfyrirtækið Fitch Rat-
ings að það hefði staðfest einkunnir Kaupþings banka hf. (gamla Kaup-
þings), Landsbanka Íslands hf. (gamla Landsbanka Íslands) og Glitnis
hf. (gamla Glitnis). Einkunnir fyrir skammtíma- og langtímaskuldbind-
ingar voru staðfestar sem D, stuðningseinkunn 5 og óháð einkunn F.
Fyrirtækið tilkynnti við sama tækifæri að það hefði hætt mati á bönk-
unum.
Hinn 23. janúar birti matsfyrirtækið Moody’s árlega skýrslu um láns-
hæfi Ríkissjóðs Íslands. Fram kom í skýrslunni að fyrirtækið teldi enn
að Ríkissjóður Íslands væri í fjárfestingarfl okki, þrátt fyrir efnahags- og
fjármálaáfall og þær áskoranir sem efnahagurinn stendur frammi fyrir.
Hins vegar voru horfur um lánshæfi seinkunnina Baa1 áfram metn-
ar neikvæðar, þar sem fyrirtækið telur að efnahagshorfur séu háðar
óvissu og gætu breyst fyrirvaralítið.
Hinn 26. janúar var ríkisstjórnarsamstarfi Sjálfstæðisfl okks og Samfylk-
ingar slitið. Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfi ngarinnar-græns
framboðs tók við stjórnartaumunum hinn 1. febrúar undir forsæti
Jóhönnu Sigurðardóttur.