Vestfirska fréttablaðið - 16.12.1986, Blaðsíða 40
40
vEstfirska
TTABLA029
Hann er fæddur í Arnarfirði 1913. Afkomandi
manna sem enginn vissi hvað voru sterkir. Alinn
upp við trú á fjörulalla, drauga og galdra. Réðist
15 ára gamall á Samvinnubátana á ísafirði og
hefur mest lítið komið í land síðan. Segist sjálfur
ekki kunna neitt annað. Hefur alla tíð verið mikill
veiðimaður. Fiskur, selur, rjúpa og egg úr björg-
unum á vorin. Það hafa verið hans viðfangsefni
um dagana. Hjörtur Bjarnason sjómaður og skip-
stjóri á ísafirði, stundum kallaður Hjörtur Stapi,
kenndur við Stapadal í Arnarfirði, þar sem hann
ólst upp. Gamall sjógarpur sem man tímana
tvenna en hefur þó flotið áfallalítið gegnum lífið.
Einu sinni hvolft undan sér bát. Sat á stafni
ásamt félaga sínum uns þeim var bjargað. Var
rænt af enskum landhelgisbrjót og siglt með
hann til Englands. Segist sjálfur vera orðinn
gamall og gleyminn og ekkert muna. En reynum
samt.
EUROCARD Á ÍSLANDI
Óskar viðskiptaaðilum sínum
á Vestfjörðum gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári,
með þökk fyrir árið,
sem er að líða.
Eurocard á íslandi
KREDITKORT HF.
Ármúla 28 - Sími 685499