Vestfirska fréttablaðið - 16.12.1986, Blaðsíða 3
vestfirska
TTABLAOIS
3
Útgefandi og ábyrgöar-
maður: Árni Sigurösson
Fagraholti 12
ísafirði
Blaðamenn: Páll Ás-
geir Ásgeirsson
og Arnar Þ. Árnason
Áskriftar- og
auglýsingasímar
4011,3100 og 3223
12. árgangur
16. desember 19
86
47. tölublað
Efnisyfirlit:
Sr. Baldur Vilhelmsson:
Hugleiðing á jólum 1986..............
Páll Ásgeirsson:
Óskastund. ísfirsk jólasaga..........
Æskulýðssamband vestfírskra safíiaða:
Jólasíða yngstu lesendanna...........
Rúnar Helgi Vignisson:
Bláeygt bam á sundfötum..............
Lorenz Mack:
Þegar tré vex frá hjarta manns.......
Þýðing og myndskreyting: Herdís Hubner
Vísnaþáttur..........................
Umsjón: Jón Einar Haraldsson
Myndskreyting: Helgi Jósteinsson
Páll Ásgeirsson:
Hún er meiri íslendingur en Dani.....
Viðtal við Ruth Tryggvason
Vemharður Pálsson:
Hátíðarmatseðill.....................
Ama Gísladóttir:
Hjá indíánum í Equador...............
Hrafnhildur Schram:
Ásgrímur - Bók um einstæðan listamann .
Esra Esrason:
HátíðarmatseðiU......................
Páll Ásgeirsson:
Hver er sínum hnútum kunnugastur.....
Heimsókn í Netagerð Vestfjarða
Gísli Halldór Halldórsson:
Maður brostinna vona.................
Ljóð
Jón Birgir Pétursson:
Á eigin ábyrgð frá fimmtán ára aldri.
Viðtal við Jón Sigurðsson
Páll Ásgeirsson:
Ég hef gutlað við sjó í sextíu ár....
Viðtal við Hjört Bjamason
Bjöm Helgason:
Annáll ísfírskra íþróttamanna........
Nokkrir Vestfirðingar:
Hugleiðingar um árið, sem er að líða.
Auk þess bókafréttir o.fl.
Bls.
.....5
....7
... 10
.... 12
.... 15
.... 16
.... 18
...21
...23
...26
...29
.30
. 33
...34
...40
...44
...49
Forsíðumyndin okkar í ár er tekin af Herði Kristjánssyni, ljós-
myndara. Skíðamennirnir eru Ólafur Sigurðsson, með búnað
frá Vélsmiðjunni Þór hf., Bjarni Gunnarsson, útbúinn af Sport-
hlöðunni og Anna Svandís Gísladóttir með skíði og búnað frá
Einari Guðfinnssyni hf.
GLEÐILEG JÓL
FARSÆLT NÝTT ÁR
Árið 1986 sem nú kveður senn hefur á margan
hátt verið gott ár og gjöfult. Sýnt er að fyrri met í
sjávarafla verða slegin þrátt fyrir illviðrasamt haust.
Frá sjónarhóli þeirra sem útnesin byggja eru þó
ýmsar blikur á lofti.
Sjómönnum þykir sér vera þröngur stakkur
skorinn í líki kvótakerfisins. Hafa mótmæli gegn
því ekki verið áður svo almenn og hávær meðal
Vestfirðinga, sem á þessu ári. Er það að vonum því
sýnt hefur verið fram á að Vestfirðir hafa borið
skarðan hlut frá borði við úthlutun kvóta.
Aukinn niðurskurður í landbúnaði hefur einnig
komið hárt niður á vestfirskum bændum ekki síður
en starfsbræðrum þeirra annars staðar.
Ljóst er að Vestfirðingum fer enn fækkandi.
Þykir mörgum með réttu sem nú sé nauðsyn sem
aldrei fyrr, að snúa bökum saman og gera ein-
hverjar gagnráðstafanir aðrar en að semja skýrslur
og samþykkja ályktanir um máhð.
En ánægjuleg tíðindi hafa einnig verið að gerast
sem auka mönnum bjartsýni á framtíð Vestfjarða.
Véstfirðingar hafa enn treyst stöðu sína sem for-
ystusveit í framleiðslu sérhæfðs búnaðar fyrir sjáv-
arútveginn. Ævintýrið sem hófst í Pólnum á ísafirði
fyrir nokkrum árum hefur blómstrað í höndum
hugvitsmanna og sækir enn á brattann.
Árið 1986 hefur nokkuð einkennst af pólitískri
baráttu. Fyrst í kosningum til sveitarstjórna á liðnu
vori, sem víða höfðu miklar breytingar í för með
sér, og síðan aftur á haustmánuðum þegar fram
fóru prófkjör vegna Alþingiskosninga að vori.
Eldci eru öll kurl komin til grafar í þeim efnum
þegar þetta er ritað, en vonandi bera Vestfirðingar
gæfu til þess að standa saman í framtíðinni, í stað
þess að berast á banaspjótum í pólitískum hjaðn-
ingavígum.
Sameinaðir stöndum vér, en sundraðir hljótum
vér að falla.
Vestfirska fréttablaðið er nú 11 ára gamalt. Á
þessu ári verða tölublöðin 48, alls 500 síður. Sem
fyrr hefur blaðið sett á oddinn ýmis baráttumál
fyrir sterkari stöðu Vestfirðingafjórðungs, og mun
gera svo áfram.
Fastir starfsmenn hafa verið þeir Páll Ásgeirsson
og Amar Þór Ámason. Auk þeirra hafa fyrrum
starfsmenn iðulega lagt hönd á plóginn. Nægir að
nefna þá Jón Birgi Pétursson og Rúnar Helga
Vignisson sem báðir eiga efni í þessu jólablaði.
Þá eru ótaldir þeir fjölmörgu velunnarar vorir
Gleðileg jól,
farsælt nýtt ár.
Ritstjóm.