Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Blaðsíða 10

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Blaðsíða 10
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 85. árg. 20096 Flýtibati – Hvað er það? Með hefðbundinni meðferð við ristilskurðaðgerðir var sjúkrahúsdvöl yfirleitt 1­2 vikur. Fylgikvillar voru algengir og auk þess hrjáði þreyta sjúklingana í allt að þrjá mánuði eftir aðgerð. Um 1990 komu dr. Kehlet og samstarfsfólk hans í Kaupmannahöfn auga á þætti sem seinkuðu bata eftir skurðaðgerðir (verki, vanstarfsemi garna og hreyfingarleysi) og skoðuðu þá í samhengi við annað sem minnkar álag á líkamann við skurðaðgerðir (styttri fasta, léttari svæfing, endurhæfing). Þau settu fram tillögu um meðferð sem flýtir bata og sýndu fram á að samhæfa þarf marga þætti til að ná sem bestum árangri við ristilskurðaðgerðir (Maessen o.fl., 2007). Síðar komu fleiri sérfræðingar frá fimm löndum í Norður­Evrópu að þessari vinnu og úr varð „Enhanced recovery after surgery“­hópurinn (ERAS) (Fearon o.fl., 2005). Þá hafði slík meðferð verið að mótast við Hvidovre­sjúkrahúsið í Kaupmannahöfn síðustu 10 árin. Með reynslu Dananna að leiðarljósi samdi ERAS­hópurinn leiðbeiningar og skilgreindi yfir 20 meðferðarþætti við ristilskurðaðgerðir (Maessen o.fl., 2007). Þessi meðferð hefur verið kölluð flýtibatameðferð. Flýtibatameðferðin felst í samtvinnun nokkurra atriða, svo sem verkjalyfjum með sídreypi í utanbastlegg (epidural) eða staðbundinni deyfingu, minna inngripi í skurðaðgerð, skammverkandi svæfingarlyfjum, virkri verkjalyfjameðferð um munn og svo endurhæfingu með mikilli hreyfingu að aðgerð lokinni. Einnig að fjarlægja þvaglegg og aðra íhluti sem fyrst og að sjúklingar byrji strax að drekka og borða (Kehlet og Mogensen, 1999; Kehlet o.fl., 2006). Þá eru minni líkur á ógleði, uppköstum og þarmalömun, starfsemi meltingarvegar kemst fljótt í fyrra horf og sjúklingum batnar fyrr. Einnig hefur fækkað fylgikvillum á hjarta­ og lungnastarfsemi sem rekja má til áhrifa meðferðar eftir ristilskurðaðgerðina (Zargar­Shoshtari og Hill, 2008). Talið er að samsetning þessara atriða dragi úr streituviðbrögðum sjúklinga og vanhæfni líffæra verði minni í kjölfar aðgerðar. Þannig stuðlar þetta ferli að styttri legutíma og flýtir því að sjúklingurinn Allir höfundar nema Auðna starfa eða hafa starfað á deild 12G á Landspítala. BATNAR FyRR OG LÍÐUR BETUR Meðferð sjúklinga sem fara í ristilskurðaðgerð Að heyra sjúklinga sína segja: „Á nú að fleygja manni út?“ vekur alltaf umhugsun og tilfinningu um að umönnun þeirra hafi að einhverju leyti verið ábótavant. Á skurðlækningadeild 12G á Landspítala hefur verið tekin upp meðferð sem gerir það að verkum að sjúklingum batnar fyrr, líður betur og útskrifast þess vegna fyrr heim. Hér verður sagt frá undirbúningi og framkvæmd flýtibatameðferðar fyrir sjúklinga sem fara í ristilskurðaðgerð. Einnig verður greint frá niðurstöðum rannsóknar á líðan og endurbata sjúklinganna. Birna Jónsdóttir er hjúkrunarfræðingur, BS, og hefur diplóma í krabbameinshjúkrun. Björk Inga Arnórsdóttir er hjúkrunarfræðingur, BS, og hefur diplóma í krabbameinshjúkrun. Aðalbjörg Ólafsdóttir er hjúkrunarfræðingur. Dr. Auðna Ágústsdóttir er hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri á kennslu­ og fræðasviði á Landspítala. Inga Aðalheiður Valdimarsdóttir er hjúkrunarfræðingur, BS. Hrefna Magnúsdóttir er hjúkrunarfræðingur, BS, og hefur diplóma í krabbameinshjúkrun. Hjördís Hjörvarsdóttir er hjúkrunarfræðingur, BS.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.