Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Blaðsíða 22
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 85. árg. 200918
Svokölluð klínísk námsleið verður efld með
frekari sérhæfingu. Klínísk námsleið er byggð
á hugmyndafræði um klíníska sérfræðinga
í hjúkrun. Verkefni sérfræðinganna, sem
lúta að klíník, kennslu, ráðgjöf, stjórnun
og hagnýtingu rannsókna í starfi, eru höfð
að leiðarljósi í allri námsskránni. Valfögum
hefur fækkað og meistararitgerð verður
minni í sniðum, 30 einingar í stað 60.
Áhersla er lögð á klíníska sérhæfingu
og fá nemendur sérhæfða þjálfun hjá
umsjónarkennara frá upphafi náms.
Námið er samansett af Þekkingarþróun í
hjúkrunarfræði, Megindlegri aðferðafræði
og tölfræði, Eigindlegri aðferðafræði og
hagnýtingu rannsókna, Hjúkrun á sérsviði
I og II og meistararitgerð til 30 eininga.
Tuttugu einingar að auki eru bundnar í
Mati á líkamlegri og andlegri heilsu og
Nýverið voru samþykktar breyt
ingar á framhaldsnámi við hjúkr
unarfræðideild Háskóla Íslands.
Hjúkr unarfræðideild býður nú
auk doktorsnáms og meistara
náms í hjúkrunarfræði upp á
meistaranám í ljós móður fræði.
Í meistaranámi í hjúkrunar fræði
er hægt að velja um klíníska
leið, stjórn unarleið eða rann
sóknarleið.
Sérhæfðri sál, félags og lífeðlisfræði. Þá
er sérhæfing í samráði við leiðbeinanda til
20 eininga, t.d. geðhjúkrun fyrir þá sem
sérhæfa vilja sig á sviði geðhjúkrunar.
Stjórnunarnámsleið hefur sama kjarna
og klínísk námsleið en auk þess eru
20 einingar bundnar í Forystu, kennslu
og fræðslu og Stjórnun, mannauði og
nýtingu upplýsinga. Þá eru 20 einingar í
sérhæfingu í samráði við leiðbeinanda líkt
og í klínísku námsleiðinni.
Rannsóknarnámsleið í meistaranámi telst til
nýjunga við hjúkrunarfræðideild en þar skrá
nemendur sig í meistara eða doktorsnám
strax að loknu BSnámi í hjúkrunarfræði.
Rannsóknarnám er valkostur fyrir
nemendur sem ætla sér í doktorsnám.
Nemendur ljúka meistaranámi áður en
þeir hefja doktorsnám en hér getur verið
um einhverja skörun að ræða. Einungis
þessir nemendur geta tekið 60 eininga
rannsóknarverkefni, aðrir taka 30 eininga
verkefni.
Í fyrsta sinn býður hjúkrunarfræðideild
Háskóla Íslands upp á meistaranám í
ljósmóðurfræði. Nemendur ljúka kjarna
til 55 eininga og fá 65 einingar metnar
úr embættisprófi í ljósmóðurfræðum við
hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.
Til kjarna teljast eftirfarandi námskeið:
Þekkingarþróun, Megindleg aðferðafræði
og tölfræði, Eigindleg aðferðafræði og
hagnýting rannsókna og meistararitgerð
til 30 eininga.
Námskeið stækka almennt og verða nú til
10 eininga. Þetta er gert ekki hvað síst til
hagræðingar fyrir nemendur að taka færri
en stærri námskeið. Rétt er að benda á
að frá sl. sumri hefur einingakerfi háskóla
á Íslandi verið breytt skv. alþjóðlegum
háskólaeiningastaðli (ECTS). Þetta þýðir
að einingar hafa tvöfaldast, það er
meistaranám, sem áður var til 60 eininga,
er nú til 120 eininga.
Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
hefur útskrifað rúmlega sextíu meistara
í hjúkrun og stefnir vel á annan tug
nemenda að útskrift í júní. Um sjötíu
meistaranemendur eru í námi við deildina
og fimm doktorsnemendur. Framhaldsnám
við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands er
í vexti. Breytingar á náminu eru framlag
hjúkrunarfræðideildar til að koma til móts
við þarfir samfélagsins og væntingar
hjúkrunarfræðinga um framúrskarandi
framhaldsnám.
Elva Björg Einarsdóttir er verkefnastjóri
framhaldsnáms í hjúkrunarfræðideild Háskóla
Íslands og annast daglega umsýslu vegna
framhaldsnáms við deildina.
Elva Björg Einarsdóttir, elvab@hi.is
BREyTINGAR Á FRAMHALDSNÁMI VIÐ
HJÚKRUNARFRÆÐIDEILD HÁSKÓLA ÍSLANDS