Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Blaðsíða 17
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 85. árg. 2009 13
að standa fyrir vinnustaðafundum
um sérstök málefni ef viðkomandi
svæðisdeild eða einstakir félagsmenn
óska þess. Trúnaðarmanni ber að kynna
félagsmönnum stöðu samningamála
þegar tilefni er til, annast fundarboð
og sjá um atkvæðagreiðslu í félaginu á
viðkomandi vinnustað eða svæði.
Það ekki að furða ef einhver hefur dregið
sig í hlé eftir að hafa lesið allt þetta!
Reyndar er sumt af þessu framkvæmt
þannig að skrifstofa félagsins eða
svæðisdeild kallar til fundar, til dæmis
til þess að upplýsa um gang mála í
samningum. Þá eru atkvæðagreiðslur
yfirleitt framkvæmdar af skrifstofu FÍH.
Á móti skyldum sínum hefur trúnaðarmaður
ákveðin réttindi samkvæmt lögum. Fyrst ber
að nefna rétt til þess að rækja skyldur sínar
í vinnutímanum. Vinnuveitandi á jafnvel að
leggja til vinnuaðstöðu en það er því miður
sjaldan gert. Þá á trúnaðar maður að fá að
vita um lausar stöður, hvernig er staðið að
því að ráða í þær og hver ráðningarkjörin eru.
Hann hefur rétt til að sækja þing, fundi og
ráðstefnur sem samsvarar allt að einni viku
á ári. Ef hann á sæti í samninganefnd eða
tekur þátt í svipuðum verkefnum tengdum
kjarasamningagerð á hann að fá leyfi til þess
að sinna því. Allt þetta getur hann gert án
skerðingar á reglubundnum launum.
Trúnaðarmaður á Landspítala
segir frá
En hvernig er þá að vera trúnaðarmaður?
Tímarit hjúkrunarfræðinga talaði við Evu
Hjörtínu Ólafsdóttur, aðaltrúnaðarmann á
LSH. Hún vinnur á deild A7 og var beðin
um að vera trúnaðarmaður þar 2006. Hún
hafði svolitla reynslu því hún hafði áður
verið trúnaðarmaður í Hveragerði. Þegar
aðaltrúnaðarmann vantaði á Landspítala
bauð hún sig fram.
Trúnaðarmannsstarfið segir hún mikið
ganga út á að koma upplýsingum á fram
færi. Að vísu hefur margt breyst síðustu ár
og nú getur fólk fundið flestar upplýsingar
um kjaramál á netinu. Hennar hlutverk sem
trúnaðarmaður verður þá að gefa frekari
útskýringar og leiðbeina. Hún segir að
félagsmenn gætu nýtt sig trúnaðarmennina
betur. Oft hringja hjúkrunarfræðingar beint
í félagið þegar betra hefði verið að spyrja
trúnaðarmanninn. Hann geti oftast gefið
svar við spurningunni og stundum betra
svar því hann hafi staðbundna þekkingu
sem starfsmenn félagsins hafi ekki alltaf.
„Annað mikilvægt verkefni fyrir
trúnaðarmanninn er að styðja við
félagsmenn þegar upp koma vandamál,“
segir Eva. „Þá er gott að vera ekki einn, til
dæmis á fundi með yfirmanni.“ Viðkomandi
geti þurft að bera fram kvartanir eða
yfirmaðurinn geti verið að hugsa um að
veita áminningu.
Sem trúnaðarmaður hefur Eva Hjörtína
tengsl bæði við félagsmenn, við félagið
og við stjórnendur og hefur oft vitneskju
sem er ekki á allra vitorði. Hún hefur þess
vegna getað leiðrétt misskilning og borið
til baka sögusagnir. Það er mikilvægt að
til staðar sé trúnaðarmaður á deildinni
og hjúkrunarfræðingar þurfi að tryggja
að svo sé.
Hver er þá kosturinn við að vera
trúnaðarmaður? „Sem trúnaðarmaður
kynnist maður fullt af skemmtilegu fólki,
bæði fólki af öðrum sviðum og fólki
í öðrum stéttarfélögum. Maður verður
smám saman vel að sér í kjaramálum, og
það getur líka komið sér vel persónulega,
og aflar sér alls kyns þekkingar. Í starfinu
hef ég einnig kynnst betur stjórnendum
þar sem ég er tengiliður milli stjórnenda,
félagsins og félagsmanna,“ segir Eva
Hjörtína að lokum.
Eins og Eva Hjörtína segir er mikilvægt
að á deildinni sé ávallt trúnaðarmaður og
þegar hann hefur verið kjörinn er einnig
mikilvægt að tilkynna félaginu um það.
Það má gera annaðhvort með því að
hafa samband við svæðisdeildina eða
beint við skrifstofu FÍH. Þetta er mjög
brýnt þar sem félagið verður að tilkynna
vinnuveitanda nafnið. Vinnuveitendur
verða að hafa rétt nöfn trúnaðarmanna
til að tryggt sé að trúnaðarmenn geti
sinnt starfi sínu og til að laun þeirra verði
ekki skert þegar þeir sækja fundi eða
námskeið á vegum félagsins.
Trúnaðarmenn starfa samkvæmt lögum
félagsins á vegum svæðisdeildar frekar
en á vegum stjórnar félagsins. Þetta
hefur virkað ágætlega á landsbyggðinni
en ekki í Reykjavík. Með nýjum lögum,
sem samþykkt voru á aðalfundi 2008,
munu svæðisdeildir félagsins styrkjast og
fá nýtt hlutverk. Líklega mun þetta einnig
hafa áhrif á hlutverk trúnaðarmanna. Nú
er vinnuhópur að útfæra nánar hlutverk
svæðisdeilda og málið verður svo rætt á
næsta aðalfundi sem er 12. maí nk.
Hver er trúnaðarmaður þinn?
Trúnaðarmenn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga eru yfir
100 talsins, þar af yfir 70 á höfuðborgarsvæðinu, þannig
að ekki ætti að vera langt í þinn trúnaðarmann. Samkvæmt
starfsreglum hans ættir þú að hafa hitt hann þegar þú
byrjaðir á núverandi vinnustað. Ef þú ert ekki alveg viss um
hver er trúnaðarmaður þinn getur þú spurt deildarstjóra
þinn eða hjúkrunarfræðing á deildinni. Nöfn trúnaðarmanna
er einnig að finna á vef félagsins.