Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Blaðsíða 36

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Blaðsíða 36
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 85. árg. 200932 Efnahagskreppan og niðurskurður, sem henni fylgir, eru þegar farin að hafa áhrif á heilbrigðiskerfið. Forsenda þess að geta viðhaldið góðu og skilvirku heilbrigðiskerfi er að nóg sé af vel menntuðu og reyndu heilbrigðisstarfsfólki að störfum á hverjum tíma. Manneklu í hjúkrun hefur oft borið á góma undanfarin ár. Skortur á hjúkrunarfræðingum hérlendis hefur verið að aukast og var víða orðinn viðvarandi vandamál, m.a. á ýmsum deildum Landspítalans sem og í öðrum geirum hjúkrunar. Vegna áhrifa efnahagskreppunnar virðist heilbrigðisstofnunum ganga betur að manna stöður sem áður voru lausar. Samtímis á að loka stofnunum og sjúkradeildum og því færri stöður að fylla. Þótt ástandið sýnist þannig vera að batna og telja mætti að manneklunni gæti verið að linna er ljóst að vandinn er ekki að öllu leystur. Orsakir manneklu eru fjölmargar og margbrotnar. Lausn vandans fæst ekki með því að leysa eina orsök en láta hinar ósnertar. Nýlegt framboð á starfsfólki breytir ekki þeirri staðreynd að meðalaldur hjúkrunarfræðinga fer stöðugt hækkandi og fyrirsjáanlegt að stórir hópar hætta störfum innan fárra ára. Á sama tíma er minni aðsókn í hjúkrunarnám meðal ungs fólks þannig að nýliðun í stéttinni nægir ekki til að brúa síbreikkandi bilið milli þeirra sem fara á eftirlaun og þeirra sem bætast í stéttina. Niðurskurður á stöðugildum og fjármagni gerir starfsumhverfið erfiðara. Neikvætt starfsumhverfi er einn þeirra þátta sem viðhalda vandanum. Þetta eru aðeins nokkur dæmi af mörgum um samverkandi orsakir manneklu og ekki er hægt að benda á eina þeirra umfram aðrar. Þörfin fyrir að taka heildrænt á vandanum er jafn brýn og áður og ljóst er að mannekluvandinn mun koma aftur upp á yfirborðið innan skamms. Mat á starfsumhverfinu og breytingar til bóta eru mikilvægur þáttur í því að fyrirbyggja og leysa mannekluvandann. Hætt er við að þeir sem gegna lykilhlutverki við lausn vandans blindist af tímabundnu framboði hjúkrunarfræðinga nú um stundir og geri lítið til að leysa hann. „Hætt er við að þeir sem gegna lykilhlutverki við lausn vandans blindist af tímabundnu framboði hjúkrunarfræðinga og geri lítið til að leysa hann.“ Starfsumhverfi og mannekla Starfsumhverfið hefur mikil áhrif á hjúkrunar­ fræðinga. Heilbrigðiskerfið og starfs aðstæður hjúkrunarfræðinga hafa tekið miklum breytingum á undanförnum áratugum. Skjól­ stæðingar verða sífellt fleiri, eldri og veikari. Með hækkandi meðalaldri í heiminum fjölgar skjólstæðingum með langvinna sjúkdóma. Gert er ráð fyrir að rúmlega 40% þeirra hafi samtímis sjúkdóma í fleiri en einu líffærakerfi sem gerir birtingarmyndir sjúkdómanna og meðferð þeirra flóknari (Institute for Health & Aging, 1996). Sjúkrahús sinna því stöðugt fleiri sjúklingum en legutíminn hefur styst, legusjúklingar eru veikari og þurfa æ meiri hjúkrun. Einnig gera Vilborg Guðlaugsdóttir, vilborgg@mi.is LEySIR KREPPAN MANNEKLU Í HJÚKRUN? HVAÐ MEÐ STARFSUMHVERFIÐ? Nú gengur betur en áður að manna stöður hjúkrunarfræðinga á heilbrigðisstofnunum. En vandinn er ekki leystur því eftir er að takast á við orsakirnar sem búa að baki. Stórir hópar hjúkrunarfræðinga munu fara á eftirlaun á næstu árum og versnandi starfsumhverfi vegna niðurskurðar gæti haft áhrif á aðsókn í hjúkrunarnám og nýliðun í stéttinni. Vilborg Guðlaugsdóttir lauk BS­gráðu í hjúkrunarfræði frá HÍ árið 2008 og starfar nú á deild 13G á Landspítala.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.