Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Blaðsíða 28

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Blaðsíða 28
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 85. árg. 200924 Undanfarin ár hefur orðið vakning meðal almennings um réttindi í lífeyrissjóðum og ungt fólk er farið að sýna þessum málum meiri fyrirhyggju en áður þekktist. Hjúkrunarfræðingar hafa hins vegar löngum verið nokkuð meðvitaðir um lífeyrisréttindi sín og verið duglegir að afla sér upplýsinga og þekkingar. Það er ábyrgðarhluti að þekkja rétt sinn og grundvallaratriði þegar kemur að því að meta hvort tryggingarnar, sem lífeyrissjóðirnir veita, eru nægilegar eða hvort þörf er fyrir frekari tryggingar. Hér verður ekki gerð grein fyrir þeim réttindum sem sjóðfélagar ávinna sér með greiðslu í lífeyrissjóð eða hvernig þeirri réttindaávinnslu er háttað. Ætlunin er að svara nokkrum algengum fyrirspurnum er varða sérreglur um Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga og þeim spurningum sem helst brenna á sjóðfélögum þessa stundina vegna umróts í þjóðfélaginu. Einnig verður stuttlega gerð grein fyrir nýlegum breytingum er lúta að viðbótarlífeyrissparnaði. Er Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga (LH) og B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR) sami sjóðurinn? Það er nokkuð algengur misskilningur að hjúkrunarfræðingar, sem eru sjóðfélagar í Lífeyrissjóði hjúkrunarfræðinga, telji sig vera sjóðfélaga í B­deild LSR. Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga er sjálfstæður sjóður og starfar eftir sérlögum um Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga nr. 2/1997. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins er ekki sami sjóðurinn og starfar hann samkvæmt lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins nr. 1/1997. Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins skiptist í tvær deildir, A­deild og B­deild. LSR og LH hafa aftur sameiginlegt skrifstofuhald en eru tveir aðgreindir sjóðir. Hver er munurinn á Lífeyrissjóði hjúkrunarfræðinga (LH) og B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR)? Á árinu 1997 varð umtalsverð breyting á lögum um Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga. Samhliða var gerð mikil breyting á Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins þar sem sjóðnum var skipt upp í tvær deildir, A­deild og B­deild. Sjóðfélagar völdu hvort þeir vildu vera áfram í eldra réttindakerfi, sem er B­deild LSR og LH, eða gerast aðilar að A­deild LSR. LH og B­deild LSR var lokað fyrir nýjum sjóðfélögum og verða því allir nýir sjóðfélagar aðilar að A­deild LSR. LH og B­deild LSR eru því aðeins starfandi fyrir þá sem voru þegar orðnir sjóðfélagar á árinu 1997. Starfandi hjúkrunarfræðingar geta því verið að greiða í LH eða A­deild LSR en allir sem hófu störf eftir 1997 eru sjóðfélagar í A­deild LSR. Breytingarnar, sem gerðar voru á LH á árinu 1997, fólust aðallega í því að réttindi sjóðfélaga voru löguð að réttindakerfi B­deildar LSR. Áður voru réttindi í LH með nokkuð öðrum hætti en réttindi sjóðfélaga í B­deild LSR. Eftir breytingarnar eru reglurnar að mestu samhljóða en í nokkrum atriðum eru sjóðirnir þó enn ólíkir. Þar ber helst að nefna að aðildarskilyrðin eru ólík en til að heimilt sé að greiða í LH er nægilegt að sjóðfélagi sé ráðinn í starf með föst mánaðarlaun. Starfshlutfall skiptir ekki máli og því er heimilt að greiða í sjóðinn og ávinna sér réttindi þótt starfshlutfall sé lágt og eru þar engin takmörk sett. Í B­deild er hins vegar gert að skilyrði að starfshlutfall sé a.m.k. 50% til að heimilt sé að greiða af því til deildarinnar. Sjóðfélagi í B­deild, sem minnkar við sig starfshlutfall niður fyrir hálft starf, tapar rétti til aðildar að deildinni. Í B­deild og LH gildir sú regla að sjóðfélagar þurfa að láta af störfum, sem heimilt er að greiða af til sjóðanna, til að réttur skapist til lífeyristöku. Í þessu sambandi ber að líta til þess að þótt starfshlutfall fasts starfs sé lágt er ekki heimild til lífeyristöku samhliða slíku starfi þar sem það veitir rétt til aðildar að LH. Þá ber að nefna svokallaða aðlögunar­ reglu sem gildir um LH en ekki B­deild LSR. Aðlögunarreglan heimilar hjúkrunarfræðingum, sem fæddir eru á árunum 1941 til 1950, að hefja töku lífeyris fyrir almennan lífeyristökualdur sem er 65 ár. Fyrir breytingarnar á árinu 1997 var hinn almenni lífeyristökualdur í LH við 60 ára aldur en sjóðfélagar gátu þó óskað eftir því að sjóðurinn veitti makalífeyrisréttindi gegn því að lífeyristaka frestaðist til 65 ára aldurs. Fyrir breytingarnar var því ekki makalífeyrisréttur nema slíkt afsal á lífeyristöku við 60 ára aldur hefði átt sér stað. Samhliða aðlögunarreglunni var lögfest hin svokallaða 95 ára regla í LH en hún heimilar lífeyristöku þegar greiðslutími í sjóðinn og lífaldur ná 95 árum, þó aldrei fyrr en við 60 ára aldur. Sjóðfélagar í LH geta hafið töku lífeyris samkvæmt aðlögunarreglunni þótt 95 ára reglu hafi ekki verið náð og öfugt. Neðangreind tafla sýnir aðlögunarregluna. Annað sem ólíkt er með B­deild LSR og LH eru þær reglur sem gilda um hvaða launagreiðendum er heimilt að tryggja starfsmenn sína í sjóðnum. Í B­deild LSR fær enginn nýr launagreiðandi heimild til að greiða í sjóðinn. Reglurnar eru aftur opnari að því er varðar heimild til að greiða í LH. Hér verður ekki gerð grein fyrir þeim sértæku reglum en þær má finna í 17. gr. laga um Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga nr. 2/1997. Sjóðfélagar í LH skulu þó hafa Þórey Þórðardóttir, thorey@lsr.is HVAÐ VEIST ÞÚ UM LÍFEyRISMÁL? Íslenskir lífeyrissjóðir eru skyldubundið tryggingarkerfi fyrir alla starfandi einstaklinga á landinu og fjölskyldur þeirra. Hlutverk sjóðanna er að tryggja eftirlaun og lífeyri til maka og barna við fráfall sjóðfélagans. Sjóðirnir eru því eins konar eftirlauna­ og fjölskyldutryggingakerfi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.