Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Blaðsíða 40

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Blaðsíða 40
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 85. árg. 200936 ákvörðunum, stjórn og framtíðarstefnu verða þeir ánægðari með leiðtoga sinn, streita minnkar og þeir skynja meiri réttlætiskennd. Hjúkrunarfræðingar vilja að yfirmenn veiti forystu en skipi ekki fyrir og leita einna helst eftir leiðtoga sem fellur inn í fyrirmynd þjónustuleiðtoga (Laschinger o.fl., 2001). Rannsókn, sem Sigrún Gunnarsdóttir gerði á Landspítala árið 2002, benti til að margt væri gott í starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga þar. Fram kom að Landspítali var talinn hafa mikilvæga eiginleika styðjandi starfsumhverfis segulsjúkrahúss. Samskipti við lækna voru þar mest áberandi en hjúkrunarfræðingar töldu stuðning innan deilda góðan sem og hugmyndafræðina að baki hjúkruninni og mönnun almennt fullnægjandi. Það sem talið var ábótavant var stuðningur yfirstjórnenda sjúkrahússins (Gunnarsdottir o.fl., 2007). Nokkur ár eru síðan rannsóknin var gerð og líklegt er að aðstæður séu aðrar í dag og er það verðugt rannsóknarverkefni. Hvað er til ráða? Augljóst er að neikvætt starfsumhverfi hefur slæm áhrif á hjúkrunarfræðinga og gæði og öryggi hjúkrunarþjónustunnar. Skjólstæðingar verða óánægðari, ráðvilltir og kvörtunum fjölgar. Enn fremur dregur úr trausti almennings gagnvart sjúkrahúsum. Ávinningur þess að bæta starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga er því gríðarlegur fyrir heilbrigðiskerfið og getur skipt sköpum í baráttunni við mannekluna. Ljóst er að einstaklingar ráða sig fremur til starfa þar sem hagstæðast er boðið með tilliti til launa, starfsaðstöðu og vinnutíma. Þeir leita þangað sem borin er virðing fyrir þeim, þeir njóta ávinnings vegna starfshæfni, fá verkefni sem reyna hæfilega á kunnáttu þeirra og færni og fá tækifæri til að þroskast sem persónur og fagfólk. Nauðsynlegt er að kanna betur starfsaðstæður á sjúkrastofnunum hér á landi og bæta þær. Þá skiptir sköpum að skapa heilbrigt, réttlátt og öruggt starfsumhverfi svo hægt sé að tryggja öryggi sjúklinga, auka líkur á ráðningum, halda reyndara starfsfólki í vinnu og viðhalda fjárhagslegri hagkvæmni í rekstri og hafa þannig hemil á mannekluvandanum. Hafa ætti sex staðla heilbrigðs starfsumhverfis og líkan segulsjúkrahúsa, sem áður hafa verið nefnd, að leiðarljósi við slíkt. Einnig skiptir máli að þekking hjúkrunarfræðinga, starfshæfni þeirra og reynsla séu metin að verðleikum og þeir fái hrós og uppörvun frá yfirmönnum og samstarfsmönnum, ekki síður þeir sem reyndir eru, en það þykir ekki eins sjálfsagt. Til að ná árangri við úrlausn vandans þarf að taka heildrænt á honum. Leita þarf nýrra leiða til að auka aðsókn í hjúkrun, ná í hjúkrunarfræðinga sem ekki starfa við fagið, halda hjúkrunarfræðingum lengur við störf í faginu og gera hjúkrun sterkari sem starfsgrein á samkeppnismarkaði. Bætt starfsumhverfi hefur mikil áhrif til að leysa vandann. Kanna mætti hvað íslenskir hjúkrunarfræðingar telja mikilvæga eiginleika í fari stjórnenda og hvernig þeir telja að bæta megi starfsumhverfið. Eins mætti kynna betur eiginleika þjónustuleiðtoga fyrir stjórnendum stofnana. Sumar orsakir manneklu og hugsanlegar aðgerðir til að leysa hana eru þekktar. Flestar lausnirnar eru gerlegar en krefjast í mörgum tilvikum fjármagns eða mannafla. Hér er það sem skórinn kreppir að. Fjármagn til úrlausna í heilbrigðiskerfinu virðist vera af skornum skammti. Stöðugt berast fréttir af of miklum kostnaði sjúkrastofnana og að skera þurfi niður eins og nýleg dæmi sanna. Ekki er þó endalaust hægt að spara og hagræða þegar sparnaðurinn bitnar á heilbrigðisstarfsfólki, þjónustu sjúkrastofnana og öryggi sjúklinga. „Hjúkrunarfræðingar geta ekki tekist á við mannekluna einir sér.“ Hjúkrunarfræðingar geta ekki tekist á við mannekluna einir sér. Mannekla snýst ekki einungis um fjöldatölur heldur um hvernig heilbrigðiskerfinu tekst að fá hjúkrunarfræðinga til að nýta hæfileika sína sem best. Hún snýst um það að hafa ekki nægilegt bolmagn til að sinna sjúklingum á öruggan hátt. Til að leysa úr vandanum þurfa stjórnendur sjúkrahúsa og þeir sem vinna að opinberri heilbrigðisstefnu að víkka sjóndeildarhringinn og vera frjóir í hugsun og einblína ekki á fáein Fr ét ta pu nk tu r Út er komin bókin „Nursing in the World“ með upplýsingum um aðstæður hjúkrunar í 130 löndum um allan heim. Það er stofnunin The International Nursing Fund í Japan sem gefur bókina út. Þetta er 5. útgáfa bókarinnar en hún kom fyrst út 1977. Í bókinni má finna ýmsar upplýsingar um hjúkrun en einnig er fjallað um landfræðilegar og félagslegar staðreyndir og gerir það bókina að ágætisuppflettiriti. Aftast í henni eru samanburðartöflur yfir helstu upplýsingar í einstökum köflum. Í bókinni er einnig að finna stuttar frásagnir um sögu hjúkrunarmenntunar í mörgum löndum og er það athyglisverður lestur. Bókin er til sýnis á skrifstofu FÍH. Samantekt um hjúkrun í heiminum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.