Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Page 16
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 85. árg. 200912
Ákvæði um trúnaðarmenn hafa verið í
íslenskum lögum síðan 1938. Það var þó
ekki fyrr en 1986 sem opinberir starfsmenn
fengu trúnaðarmannakerfi með lögum um
kjarasamninga opinberra starfsmanna. Í
dag er staða trúnaðarmanns það sterk
að hann getur sinnt málum vinnufélaga
sinna án þess að þurfa sjálfur að óttast
um að missa vinnuna vegna þessa.
Tiltölulega lítið hefur reynt á trúnaðarmenn
hjúkrunarfræðinga. Algengt er að þegar
hjúkrunarfræðingar þurfa á aðstoð að halda
leiti þeir beint til skrifstofu Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga með málefni sem
trúnaðarmaður hefði auðveldlega getað
leyst úr. Skortur á hjúkrunarfræðingum
hefur valdið því að hjúkrunarfræðingar
hafa yfirleitt getað valið sér vinnustað,
og vinnuveitendur hafa verið tiltölulega
sveigjanlegir og velviljaðir. Nú er staðan
önnur og ekki er lengur öruggt með vinnu
og starfskjör þannig að það er um að gera
að rifja upp hvað trúnaðarmenn geta gert
fyrir félagsmenn sína.
Cecilie Björgvinsdóttir er verkefnastjóri
kjara og réttindamála á skrifstofu félagsins.
Fyrir hönd félagsins ber hún einnig ábyrgð
á trúnaðarmannakerfinu. Hún segir að
hjúkrunarfræðingar þurfi að vera mjög
meðvitaðir um störf trúnaðarmanna, hlut
verk þeirra og skyldur til þess að þeir nýtist
sem skyldi. Trúnaðarmaður starfi sem
tengiliður milli félagsmanna og yfirmanna
stofnana en einnig milli félagsmanna
og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Trúnaðarmaðurinn gjörþekki aðstæður á
vinnustaðnum og hafi þannig þekkingu
sem sé ekki endilega til staðar á skrifstofu
félagsins.
Að sögn Cecilie eru trúnaðarmenn á
langflestum vinnustöðum landsins. Samtals
Trúnaðarmannafundur í janúar sl.
Christer Magnusson, christer@hjukrun.is
ÞEIR VAKA yFIR STARFSKJÖRUM
HJÚKRUNARFRÆÐINGA
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur lengi haft vel skipulagt net trúnaðarmanna
á vinnustöðum hjúkrunarfræðinga. Þó vita líklega ekki allir félagsmenn hverjir
þeir eru og hvert verksvið þeirra er. Starf trúnaðarmanns er lögverndað og um
að gera að nýta sér þjónustu trúnaðarmanna.
eru þeir um eitt hundruð en þrír fjórðu þeirra
eru í Reykjavík. Á vinnustað, þar sem starfa
fimm eða fleiri hjúkrunarfræðingar, geta
hjúkrunarfræðingar kosið sér trúnaðarmann.
Stærri vinnustöðum er hægt að skipta
í vinnustöðvar sem hver og ein getur
haft sinn trúnaðarmann. Á Landspítala,
stærsta vinnustað hjúkrunarfræðinga, eru
trúnaðarmenn á flestum deildum.
En trúnaðarmaðurinn stendur alls ekki einn.
Cecilie segir að FÍH veitir trúnaðarmönnum
ýmiss konar þjónustu. Að minnsta kosti
einu sinni á ári er boðið upp á námskeið
fyrir trúnaðarmenn. Þeir eiga einnig kost á
að sækja námskeið og þing hjá Bandalagi
háskólamanna og fleiri aðilum. Í verkahring
Cecilie er einnig að upplýsa trúnaðarmenn
um stöðu kjaramála og styrkja og aðstoða
trúnaðarmenn í þeim málum sem upp koma
á vinnustöðunum. Þegar trúnaðarmaður
telur sig ekki geta leyst úr máli getur hann
skotið því til svæðisdeildar en oftast kemur
það þá inn á borð Cecilie.
Hlutverk trúnaðarmanns
Í reglum um trúnaðarmenn er gert ráð
fyrir kosningu á tveggja ára fresti. Í
flestum tilfellum er trúnaðarmaðurinn þó
ekki kosinn heldur er skorað á einhvern
á vinnustaðnum að taka starfið að sér.
Hugsanlega halda hjúkrunarfræðingar að
starfið sé erfiðara en það er í raun en það
getur verið svolítið yfirþyrmandi að lesa
listann yfir skyldur trúnaðarmanns. Eins
og segir í starfsreglum trúnaðarmanna
á hann að standa vörð um réttindi og
skyldur félagsmanna. Einnig á hann að
leitast við að eiga góð tengsl við þá sem
hann þarf að eiga samskipti við og stuðla
að sáttum þegar til ágreinings kemur.
Þá ber honum skylda til að kynna sér
ýtarlega kjarasamning Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, upplýsa félagsmenn
um ný og breytt kjaraatriði og fylgjast með
að réttindi og skyldur félagsmanna og
stofnana séu virtar. Honum ber enn fremur
að taka við kvörtunum og fyrirspurnum
félagsmanna og rannsaka efni þeirra
og krefja vinnuveitanda um lagfæringu
ef þess gerist þörf. Trúnaðarmaðurinn
á svo að skila skýrslu til félagsins um
niðurstöðuna. Ætlast er einnig til að hann
fylgist með þegar nýir félagsmenn ráða
sig á vinnustaðinn og kynni þeim hver sé
þeirra trúnaðarmaður. Einnig skal hann
kynna nýráðnum hjúkrunarfræðingum
helstu atriði kjarasamninga og sérstök
kjör á stofnuninni. Þá ber trúnaðarmanni