Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Page 23
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 85. árg. 2009 19
Meistaranámið í heilbrigðisvísindum er
120 ECTSeiningar. Það er byggt upp
af sex námskeiðum sem eru 10 ECTS
einingar hvert, samtals 60 ECTSeiningar,
og meistararitgerð sem er að jafnaði
60 ECTSeiningar. Þrjú námskeið eru
skyldunámskeið (alls 30 ECTSeiningar) en
hin þrjú eru valnámskeið. Inntökuskilyrði er
að umsækjendur hafi lokið BSnámi á sviði
heilbrigðisvísinda eða skyldra greina með
að öllu jöfnu fyrstu einkunn frá viðurkenndri
háskólastofnun.
Diplómanámið er byggt upp á sama
hátt og meistaranámið. Þrjú námskeið
eru skyldunámskeið en hin þrjú eru
valnámskeið. Nemendur geta eftir
þetta 30, 40 eða 60 ECTSeininga
framhaldsnám útskrifast með diplóma í
heilbrigðisvísindum. Inntökuskilyrði eru
þau sömu og gilda um meistaranámið.
Námið er þverfaglegt. Lögð er áhersla á
frelsi nemans til að velja sér áherslur og að
hann fái ráðgjöf við það val. Lögð er áhersla
á virkni nemenda og umræður, að jafnaði
eru verkefni í stað prófa. Markmið námsins
er að þeir sem útskrifast úr náminu verði
gagnrýnir greinendur, ígrundandi fagmenn,
breytingaliðar og víðsýnir og skapandi
leiðtogar. Þetta eru rauðu þræðirnir í
uppbyggingu og innihaldi námskeiða, og
þetta er haft að leiðarljósi í kennsluháttum
og námsmati. Þá er í öllum námskeiðum
lögð áhersla á mikilvægi rannsókna. Kennt
Hjúkrunarfræðingar eru ekki bundnir við HÍ ef þeir vilja bæta
við menntun sína. Þeir geta líka sótt sér framhaldsmenntun í
Háskólanum á Akureyri. Þar eru í boði þrjár námsleiðir, almennt
meistaranám og námsleiðir með áherslu á stjórnun eða öldrun.
Hægt er að taka hluta meistaranáms og útskrifast með diplóma í
heilbrigðisvísindum.
er í lotum og námið skipulagt þannig að
stunda megi vinnu með því. Námslotur
eru fjórar á hverju misseri, ein í mánuði.
yfirleitt standa að minnsta kosti þrír
sérfræðingar saman að hverju námskeiði
en þannig fá nemendur meiri hugmynda
og þekkingarfræðilega breidd í námi sínu.
Nemandi skal að öllu jöfnu sitja að minnsta
kosti tvö af þrem valnámskeiðum innan
heilbrigðisdeildar HA.
Námsleiðin með áherslu á stjórnun
innan heilbrigðisþjónustunnar er kennd í
samvinnu við viðskipta og raunvísindadeild
HA. Auk námskeiða, sem talin eru upp í
meðfylgjandi töflu, tekur neminn „Forystu
og árangur“ og „Alþjóðlega mannauðs
og þekkingarstjórnun“. Forstöðumaður
námsleiðar með áherslu á öldrun er
Sólveig Ása Árnadóttir. Kjarnanámskeiðið
í því námi er „Öldrun og heilbrigði í
íslensku samfélagi“ og er þar lögð áhersla
á heilbrigði, virkni og vellíðan aldraðra.
Hægt er einnig að taka einstök námskeið.
Nemandinn þarf að uppfylla almenn
inntökuskilyrði framhaldsnámsins og fá
samþykki umsjónarkennara viðkomandi
námskeiðs.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður
Halldórsdóttir, prófessor og forstöðumaður
framhaldsnáms í heilbrigðisdeild (sigridur@
unak.is). Umsóknarfrestur er til 5. júní 2009.
DIPLÓMA OG MEISTARANÁM Í HEILBRIGÐISDEILD
HÁSKÓLANS Á AKUREyRI
Skyldunámskeið í meistaranámi Valnámskeið kennd
skólaárið 2009–2010
Valnámskeið kennd
skólaárið 2010–2011
Heilbrigði og heilbrigðisþjónusta:
Staða, stefnur og straumar
Krabbamein og líknandi
meðferð
Fötlun og samfélag
Eigindlegar rannsóknir Endurhæfing, efling og lífsgæði Langvinnir sjúkdómar og
lífsglíman
Megindlegar rannsóknir Stjórnun, rekstur og ígrundun Öldrun og heilbrigði í íslensku
samfélagi
Stjórnun, rekstur og ígrundun
Vormisseri 2010
Lota 1 11. til 16. janúar
Lota 2 15. til 20. febrúar
Lota 3 15. til 20. mars
Lota 4 12. til 17. apríl
Haustmisseri 2009
Lota 1 31. ágúst til 5. september
Lota 2 28. september til 3. október
Lota 3 26. til 31. október
Lota 4 16. til 21. nóvember
Kennsluáætlun veturinn 2009–2010