Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Síða 25

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Síða 25
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 85. árg. 2009 21 Áhugamál hjúkrunarfræðinga Á meðal hjúkrunarfræðinga leynast margir góðir áhuga ljós­ myndarar. Einn þeirra er Barbara M. Geirsdóttir, svæfingar hjúkr­ unar fræð ingur á Akureyri. Hún svaraði kallinu í 3. tölublaði Tíma­ rits hjúkrunarfræðinga 2008 og sendi inn myndina hér að ofan. Myndin er tekin í ágúst 2008 á Canon EOS 5D með 28­135 mm linsu og sýnir litla ömmu­ strákinn hennar Barböru, Emil Smára, og labradorhundinn hennar, Sókrates. Barbara segir að barnabörnin séu það dýr mætasta í lífinu en þar fyrir utan er hundurinn besti vinur mannsins. Staðreyndir um lifrarbólgu B* Lifrarbólga B er veirusýking í lifur og getur valdið bæði bráðum og krónískum/langvarandi sjúkdómi. • Veiran smitast með blóði og öðrum líkamsvessum frá sýktum einstaklingi. • Um tveir milljarðar fólks um heim allan eru sýktir af veirunni og um 350 milljónir eru með króníska sýkingu. Áætlað er að um 600.000 manns deyji á ári hverju af völdum bráðrar eða langvarandi sýkingar af lifrarbólguveiru B. • Um 25% fullorðinna sem smitast af langvarandi sjúkdómi á barnsaldri deyja vegna krabbameins í lifur eða skorpulifrar af völdum sýkingarinnar. • Lifrarbólguveira B er um 50­100 sinnum meira smitandi en alnæmis veiran (HIV). • Lifrarbólguveira B er stór áhættuþáttur í vinnu margs heilbrigðis starfsfólks. • Lifrarbólgu B má fyrirbyggja á öruggan og áhrifaríkan hátt með bólusetningu. Lifrarbólga B er alvarleg og oft lífshættuleg sýking í lifur sem orsakast af lifrarbólguveiru B. Lifrarbólga B er mjög stórt heilbrigðisvandamál á heimsvísu og alvarlegasta tegund veirusýkinga í lifur. Sýkingin getur orðið langvarandi og mikil hætta er á dauðsföllum vegna skorpulifrar og krabbameins í lifur. Á heimsvísu er áætlað að um 2 milljarðar fólks séu smitaðir af lifrarbólguveiru B og meira en 350 milljónir eru með langvarandi lifrarsýkingu og því krónískir smitberar. Bóluefni gegn lifrarbólgu B hefur verið fáanlegt frá árinu 1982. Bóluefni gegn lifrarbólgu B er mjög virkt (95%) til varnar sýkingu af völdum lifrarbólguveiru B og langvarandi afleiðingum sýkingarinnar. Bóluefni gegn lifrarbólgu B er fyrsta bóluefnið gegn algengu krabbameini hjá mönnum. *Af vefsíðu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar: http://www.who.int/mediacentre/factsheets/fs204/en/index.html TWINRIX Adult, stungulyf, dreifa í áfylltri sprautu, 1 ml. R, 0, J07BC20. Twinrix Adult inniheldur óvirka lifrarbólgu A veiru 720 ELISA einingar (á hýdrerað áloxíð. Alls: 0,05 mg Al3+) og yfirborðsmótefnavaka raðbrigði lifrarbólgu B veiru 20 míkróg (S prótein; aðsogað á álfosfat. Alls: 0,4 mg Al3+). Twinrix Adult er ætlað einstaklingum, 16 ára og eldri, sem eiga á hættu að smitast af lifrarbólgu A og lifrarbólgu B og hafa ekki myndað ónæmi. Mælt er með 1,0 ml skammti fyrir eldri en 16 ára, og er ætlað til inndælingar í vöðva. Frábendingar: Einstaklingar með þekkt ofnæmi fyrir einhverju af innihaldsefnum bóluefnisins, eða þeim sem hafa sýnt ofnæmiseinkenni eftir fyrri gjöf Twinrix Adult eða eingildra bóluefna gegn lifrarbólgu A eða B. Líkt og á við um önnur bóluefni skal fresta ónæmisaðgerð hjá einstaklingum sem eru bráðveikir og með hita. Varnaðarorð og varúðarreglur: Mögulegt er að ónæmisaðgerð beri upp á meðgöngutíma sýkingar af lifrarbólgu A eða lifrarbólgu B. Ekki er vitað hvort Twinrix Adult kemur í veg fyrir lifrarbólgu A og lifrarbólgu B í slíkum tilvikum. ÞAÐ MÁ EKKI UNDIR NOKKRUM KRINGUMSTÆÐUM GEFA TWINRIX ADULT Í ÆÐ. Tíómersal (lífrænt kvikasilfurssamband) hefur verið notað í framleiðsluferli þessa lyfs og leifar þess koma fram í lyfinu. Ofnæmisviðbrögð geta því komið fram. Milliverkanir: Þrátt fyrir að gjöf Twinrix Adult samhliða öðrum bóluefnum hafi ekki verið rannsökuð, er gert ráð fyrir því að séu ekki notaðar sömu sprauturnar eða bóluefnin gefin á sama stað, sé ekki um neinar milliverkanir að ræða. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanirnar sem greint var frá í klínískum rannsóknum voru viðbrögð á stungustað (verkir, roði og bólga). Í samanburðarrannsókn kom fram að tíðni aukaverkana eftir gjöf Twinrix Adult er ekki frábrugðin tíðni aukaverkana eftir gjöf eingildra bóluefna. Geymsluþol: 3 ár. Geymið við 2°C – 8°C. Má ekki frjósa. Geymið í upprunalegum umbúðum, til varnar gegn ljósi. Notkun og meðhöndlun: Við geymslu getur myndast fíngert hvítt botnfall með tærum vökva ofan á. Bóluefnið á að hrista vel til að ná fram hálfgegnsærri hvítri dreifu. Það þarf að skyggna það m.t.t. aðskotahluta og/eða breytinga á útliti áður en það er gefið. Ef annað hvort kemur í ljós skal farga bóluefninu. Markaðsleyfi: GlaxoSmithKline Biologicals s.a., Rue de l’Institut 89, 1330 Rixensart, Belgíu. Dagsetning endurskoðunar textans: 19. júní 2008. Skv. Lyfjaverðskrá 1. mars 2009 er heildsöluverð kr. 4482 og hámarksverð í smásölu kr 6923. Sjá nánari upplýsingar hjá Lyfjastofnun, www.serlyfjaskra.is *Landlæknisembættið Ertu bólusett/ur gegn lifrarbólgu B? Ráðlagt er að heilbrigðisstarfsfólk sem vinnur með blóð og blóðhluta sé bólusett* 3 Ap ril 2 00 9 Icl_hepatitt_ad_A4_3april2009:Layout 1 03.04.2009 16:52 Side 2

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.