Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Side 27

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Side 27
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 85. árg. 2009 23 Þar er rætt um endurhæfingarhjúkrun bæklunarsjúklinga, sjúklinga sem hafa fengið heilablóðfall, taugasjúkdóma, heilaskaða, langvinna sjúkdóma eða mænuskaða. Varðandi hjúkrun sjúklinga með langvinna sjúkdóma fannst mér sérstaklega athyglisvert að lesa umræðu um hvernig endurhæfingarhjúkrunarfræðingar eru hvattir til að styðja fólk með langvinna sjúkdóma til að verða sjálfbjarga í daglegu lífi og við að notfæra sér ýmis úrræði sem beitt er í endurhæfingarmeðferð. Í 12. og síðasta kaflanum horfir ritstjórinn, Rebecca Jester, fram á veginn og þar kemur fagþróun hjúkrunarfræðinga við sögu og mikilvægi þess að byggja störfin á gagnreyndri þekkingu. Fleiri sjúklingahópar en framangreindir þiggja gjarnan þjónustu endur­ hæfingarhjúkrunarfræðinga. Má þar nefna fólk með hjartasjúkdóma, lungna sjúkdóma og geðsjúkdóma og hefði verið áhugavert að sjá nánari umfjöllun um endurhæfingarhjúkrun þessara hópa því þó að sumt af því sem fram kemur í bók Jester megi vissulega yfirfæra á aðra sjúklingahópa, þá hefur hver hópur að ýmsu leyti sínar sérþarfir. Sem endurhæfingarhjúkrunarfræðingi í 20 ár finnst mér þessi bók mjög áhugaverð og til þess fallin að hvetja hjúkrunarfræðinga til þess að færa hjúkrun í átt að hugmyndafræði endurhæfingar í fjölbreyttu samhengi um leið og þeir huga að sinni starfsþróun. Jónína Sigurgeirsdóttir, hjúkrunarfræðingur, MS, er sérfræðingur í endurhæfingarhjúkrun á Reykjalundi. Bréf frá lesendum Í síðasta tölublaði var grein um gamla sjúkrahúsið á Ísafirði. Sigþrúður Ingimundardóttir, fyrrverandi formaður Hjúkrunarfélags Íslands, deilir hér nokkrum minningum um Bjarneyju Samúelsdóttur, en vitnað var í grein sem hún skrifaði um spítalann 1926. Sæll og blessaður, Christer, og kærar þakkir fyrir gott blað. Gaman að sjá nýtt útlit í tilefni af afmælisárinu og flott að skipta efninu í þrennt. Bara til gamans smá-hugleiðing frá gamalli ritstjórnarkonu. Kemur ekki fólkið fyrst, síðan er myndað um það félag og starfið, sem er fagið, kæmi síðast. Viðvíkjandi sjúkrahúsinu á Ísafirði þá setti Vestfjarðadeildin fyrir nokkrum árum upp svo skemmtilega minjasýningu á efstu hæð gamla spítalans. Þar var birtingarmynd hjúkrunar eins og hún var á þeim tíma er spítalinn starfaði. Gæti trúað að hún væri þar enn. Bjarney Samúelsdóttir var heiðursfélagi í Hjúkrunarfélagi Íslands. Ég heimsótti alltaf heiðursfélagana fyrir jólin þegar ég var formaður og færði þeim jólagjöf. Bjarney var ótrúleg kona og hélt sinni andlegu reisn allt fram í andlátið. Bjarney átti íbúð í Eskihlíð 6 en þar bjuggu margar hjúkrunarkonur. Höfðu keypt þar íbúð þegar verið var að byggja blokkina vegna nærveru við Landspítalann og Heilsuverndarstöðina. Í þá daga var bílinn ekki eins algengur og í dag. Föðurbróðir minn og hans kona bjuggu á efstu hæðinni og mikill vinskapur á milli þeirra. Ef frændi var eitthvað slæmur í baki gaf Bjarney honum bakstra og nudd. Konan hans fór heldur aldrei að sofa fyrr en hún var búin að fara niður til Bjarneyjar og bjóða henni góða nótt. Það þurfti ekki krepputal til að náungakærleikurinn blómstraði þar. Föðurbróðir minn og hans kona voru barnlaus en þau arfleiddu Barnaspítala Hringsins að íbúðinni í Eskihlíð. Hún er mikið notuð af barnafólki utan af landi. Þær segja mér að börnunum þyki gott að vita hvar húsið er sem pabbi og mamma eru í meðan þau dvelja á spítalanum. Bjarney var alltaf búin að baka fyrir jólin þegar ég kom til hennar. Börnin mín, sem þá voru smá, komu alltaf með mér í þessar heimsóknir og nutu góðs af jólasmákökum á báðum hæðum. Hjördís heitin Biering, hjúkrunarkona og eiginkona Gunnars Bierings barnalæknis, var frænka Bjarneyjar. Þau hjón hugsuðu mjög vel um Bjarneyju. Þegar Bjarney varð níræð hélt hún upp á það heima hjá sér með hjálp frænku sinnar og hennar fjölskyldu. Þar var Vigdís, fyrrverandi forseti, en móðir hennar, Sigríður Eiríksdóttir, og Bjarney voru miklar vinkonur. Þær störfuðu saman í stjórn félagsins í áraraðir, Sigríður sem formaður og Bjarney var gjaldkeri. Hún fór um alla Reykjavík á hjólinu sínu og rukkaði félagskonur um félagsgjaldið. Það er gaman að félagið á hjólið í dag og einnig kápuna sem hún var í við heilsuverndarstörfin í bænum, en þar var hún einnig á hjólinu. Ótrúlegar sporgöngukonur sem við síðan fetum í slóðina af í dag. Held að ég sé að verða gömul, eru ekki fyrstu teiknin að ganga í minninga- sjóðinn? Ritstjóri svarar: Kærar þakkir fyrir þetta, Sigþrúður. Ritstjóri heimsótti Safnahúsið á Ísafirði í fyrrasumar og var þá sýningin þar enn. Þetta voru áhugaverðir munir, uppsettir á skemmtilegan hátt. Þegar ég skrifaði greinina þekkti ég lítið til Bjarneyjar en hef nú kynnt mér störf hennar betur. Tímarit hjúkrunarfræðinga mun birta meira efni um og eftir hana seinna á þessu afmælisári.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.