Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Page 38
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 85. árg. 200934
„Margir verða of
uppgefnir til að njóta
tímans utan vinnunnar
og hefur það áhrif á
lífsfyllingu og almenna
ánægju þeirra.“
Hjúkrunarfræðingar eru meðal þeirra
stétta sem eru óánægðastar í starfi.
Hlutfall óánægju meðal þeirra er töluvert
hærra en meðal annarra starfsstétta,
eða u.þ.b. 3040% samanborið við
1015% hjá öðrum. Meðal þess sem
stuðlar að óánægju hjúkrunarfræðinga
vegna starfsumhverfis er minna bolmagn
í heilbrigðisgeiranum til að sinna
hjúkrunarverkefnum og auknar kröfur á
hjúkrunarfræðinga vegna undirmönnunar
á vöktum, mikið vinnuálag, vaxandi
yfirvinna, of fátt aðstoðarfólk og lág
laun. Fleiri finna einnig til óánægju vegna
þess að þeir geta ekki lokið almennilega
við störf sín, að stoðþjónusta er
ófullnægjandi sem og að stjórnendur á
sjúkrahúsum bregðast ekki við áhyggjum
þeirra, veita þeim ekki færi á að taka þátt
í ákvörðunum né meta framlag þeirra við
umönnun, vinnuskýrslur eru þvert á óskir,
starfið er líkamlega krefjandi og veldur
streitu og meiðslum (Aiken o.fl., 2001).
Sumir hjúkrunarfræðingar telja sig beitta
óréttlæti, þeir verði fyrir áreiti og ofbeldi
í vinnunni, og geta orðið niðurdregnir
vegna þess. Óréttlætið getur tengst
hlunnindum, vinnutilhögun, launamun
eða litlum möguleikum á starfsþróun
(GeigerBrown o.fl., 2004).
Neikvæðar og erfiðar starfsaðstæður hafa
áhrif á getu hjúkrunarfræðinga til að veita
gæðahjúkrun og gera hjúkrun sjúklinga
óaðlaðandi miðað við aðrar starfsgreinar
eða verkefni hjúkrunar. Þær hafa áhrif á
ákvörðun hjúkrunarfræðinga um hvort þeir
starfi áfram innan stéttarinnar, draga úr
löngun hjúkrunarfræðinga sem farið hafa
í önnur störf til að snúa aftur og aftra því
að nýir bætist í stéttina. Þær leiða af sér
kulnun í starfi og auka starfsmannaveltu.
Afleiðingarnar eru víðtækar fyrir líf og
starf hjúkrunarfræðinga. Margir verða
of uppgefnir til að njóta tímans utan
vinnunnar og hefur það áhrif á lífsfyllingu
og almenna ánægju þeirra.
Hvernig er heilbrigt
starfsumhverfi?
Fjöldi hjúkrunarfélaga hefur lýst yfir að
nauðsynlegt sé að bæta starfsumhverfi
til að ráða fram úr manneklunni. Það
skiptir sköpum að skapa heilbrigt, réttlátt
og öruggt starfsumhverfi svo hægt sé
að tryggja öryggi sjúklinga, auka líkur
á ráðningum, halda starfsfólki í vinnu
og viðhalda fjárhagslegri hagkvæmni í
rekstri.
Árangursrík heilbrigðisþjónusta byggist
á samstarfi í fjölfaglegum teymum og
krefst m.a. sameiginlegra markmiða og
ákvarðanatöku, árangursríkra samskipta
og lausn togstreitu eða ágreinings.
Félag gjörgæsluhjúkrunarfræðinga í
Bandaríkjunum hefur sett fram sex staðla
sem stuðla að heilbrigðu starfsumhverfi.
Þeim er ætlað að mynda umhverfi sem er
öruggt, græðandi, mannúðlegt og virðir
rétt, skyldur, þarfir og framlag allra, þ.m.t.
hjúkrunarfræðinga og skjólstæðinga.
Staðlana sex, sem hver og einn er
mikilvægur, má sjá í töflu 1.
1. Hæfnisrík samskipti (áhersla lögð á að
vera jafn fær í samskiptum og verklagi).
2. Raunveruleg samvinna (áhersla lögð
á að sækjast eftir og viðhalda góðri
samvinnu).
3. Árangursrík ákvarðanataka (áhersla lögð á
að fá tækifæri til og vera heilshugar með í
stefnumótun, stjórnun og mati á umönnun
sjúklinga og leiða starfsemi stofnunar).
4. Mönnun við hæfi (áhersla lögð á að
tryggja samræmi milli þarfa sjúklinga
annars vegar og fjölda og starfshæfni
hjúkrunarfræðinga hins vegar).
5. Starfsfólk virt að verðleikum (áhersla á að
allir meti framlag annarra að verðleikum).
6. Áreiðanleg forysta (áhersla á að leiðtogar
hjúkrunarfræðinga skilji mikilvægi heil
brigðs starfsumhverfis, sýni það í verki í
sam vinnu við aðra).
Tafla 1. Sex staðlar heilbrigðs starfsum hverfis
(American Association of CriticalCare Nurses,
2005).
Staðlarnir undirstrika mikilvægi öruggs
starfsumhverfis sem einkennist af
virðingu fyrir öllum en gera um leið kröfu
til skipulags og vinnubragða sem styðja
við staðlana.
Samkvæmt lögum ber vinnuveitandi
ábyrgð á starfsumhverfi og öryggi
starfsmanna. Starfsumhverfi telst
öruggt þegar skilyrði og aðstæður valda
ekki líkamlegri eða andlegri heilsuvá
starfsfólks. Finnist hjúkrunarfræðingum
starfsumhverfi sitt öruggt ná þeir frekar
starfsframa þar sem þeir eru sjálfir
öruggari og geta veitt betri hjúkrun.
Þetta gerist helst þar sem þekking
hjúkrunarfræðinga, starfshæfni þeirra og
reynsla eru metin að verðleikum og þeir
fá hrós og uppörvun frá yfirmönnum
(Aðalbjörg J. Finnbogadóttir, 2006).
Starfsumhverfið verður réttlátara þar
sem stefna og starfsferlar eru ákveðin í
samvinnu við starfsfólk og stjórnað með
sanngirni og hæfilegri umbun miðað við
ábyrgð og vinnuframlag. Slíkt umhverfi
byggir upp starfsmannatengsl sem
eru grundvölluð á trausti, virðingu og
tillitssemi við sjónarmið starfsfólks.
Rannsóknir sýna jákvæð áhrif
starfsumhverfis þar sem mönnun er næg,
samstarf mismunandi fagstétta er gott,
sjálfræði í starfi er mikið, forysta er góð og
stuðningur frá stjórnendum mikill, fagleg
sjálfsstjórn er leyfð, laun eru viðunandi
og vinnuskýrslur sveigjanlegar. Allt þetta
hefur jákvæð áhrif á öryggi og gæði
þjónustu, skilar meiri starfsánægju, eykur
stöðugleika í starfi og dregur úr kulnun.
Sjúkrahúsum með slíkar starfsaðstæður
helst vel á starfsfólki og þau laða að nýtt
starfsfólk (GeigerBrown o.fl., 2004; Aiken
o.fl., 2001). Svonefnd „segulsjúkrahús“
eru dæmi um þetta.
Segulsjúkrahús
Þegar manneklan kom fram í upphafi
níunda áratugar síðustu aldar kom í
ljós að sumum sjúkrahúsum gekk
betur en öðrum að ráða og halda
hjúkrunarfræðingum í starfi. Rannsóknir
og athuganir á eiginleikum þessara
sjúkrahúsa á næstu árum leiddu í ljós
að þau hefðu ákveðin sameiginleg
auðkenni sem nú eru kennimerki
svokallaðra segulsjúkrahúsa sem svo