Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Page 39

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2009, Page 39
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 85. árg. 2009 35 eru nefnd vegna aðdráttarafls síns á starfsfólk. Þessir eiginleikar fólust í miklu sjálfræði og stjórn hjúkrunarfræðinga á starfsumhverfi sínu, góðu sambandi hjúkrunarfræðinga við samstarfsfólk sitt, góðri stoðþjónustu, nægum mannafla til að veita hágæðaumönnun, tíma til að ræða vandamál sjúklinga við starfsfélaga, tækifæri til þátttöku í stefnumörkun, öflugum hjúkrunarstjórnanda og umhverfi sem gaf til kynna að vinna hjúkrunar­ fræðinga var metin að verðleikum (Armstrong, 2005). Segulsjúkrahús eru stofnanir þar sem hjúkrun og afdrif sjúklinga eru betri en víðast hvar annars staðar. Þessi sjúkrahús hafa ákveðna grunnþætti sem auka árangur þeirra bæði varðandi ánægju starfsmanna og skjólstæðinga, öryggi og gæði þjónustunnar. Þar starfa klínískt hæfir hjúkrunarfræðingar, samstarf þeirra og samskipti við lækna eru árangursrík, þeir eru sjálfstæðir og stjórna hjúkrunarmeðferð sjúklinga, deildarstjórar og yfirstjórn veita stuðning og starfsmenn fá hjálp við starfsþróun. Þar er nægur fjöldi hjúkrunarfræðinga að störfum og hagur sjúklinga er lykilatriði. Hjúkrunarfræðingar, sem starfa á segul­ sjúkrahúsum, mæla frekar með hjúkrun sem ævistarfi en aðrir. Þeir sýna stofnuninni meiri hollustu og telja gæði hjúkrunar mikil. Bætt starfsumhverfi og aukið sjálfræði hjúkrunarfræðinga bætir starfsanda og stuðlar að öruggari umönnun og betri afdrifum sjúklinga. Kulnun og starfsmannavelta hjúkrunarfræðinga er minni og dregur það úr rekstrarkostnaði. Þessi sjúkrahús eru mjög eftirsóknarverðir vinnustaðir og laða til sín vel menntað starfsfólk. Áhrif og árangur segulsjúkrahúsa fram yfir önnur sjúkrahús er töluverður: Þar eru færri stunguóhöpp hjúkrunarfræðinga, færri óhöpp (svo sem byltur), sýkingar og dauðsföll sjúklinga. Meðalkostnaður á sjúkling er minni vegna færri fylgikvilla sjúkrahúslegunnar. Einnig eru legudagar á gjörgæsludeildum færri, lega sjúklinga styttri, lyfjanotkun minni og rannsóknir færri og þar af leiðandi lægri kostnaður (Armstrong, 2005; Ulrich o.fl., 2007). Mikilvægt er fyrir segulsjúkrahús að bjóða samkeppnishæf laun þótt það sé ekki úrslitaþáttur í baráttu þeirra við manneklu. Stofnanabragur og hugmyndafræði skipta þar meira máli. Einnig hefur næg mönnun mikil áhrif og gefur hjúkrunarfræðingum færi á að fullnægja betur sálrænum og andlegum þörfum sjúklinga ekki síður en líkamlegum (Coile, 2001). Hvernig stjórnendur vilja hjúkrunarfræðingar? Stuðningur og einlægur áhugi stjórnenda eru mikilvæg fyrir heilbrigt starfsumhverfi, starfsánægju og gæði umönnunar. Þess eru dæmi að hjúkrunarfræðingar hætti störfum út af stjórnendum. Með því að þekkja þá hæfileika, sem hjúkrunarfræðingar kunna að meta hjá stjórnendum, fæst innsýn í hvaða leiðtogagerð þeir eru líklegri til að fylgja. Ýmsa leiðtogaeiginleika, sem hjúkrunarfræðingar telja mikilvæga í fari stjórnenda, má sjá í töflu 2. Marga þeirra má sjá í fari svonefndra þjónustuleiðtoga. Þjónustuleiðtogi er fyrst og fremst þjónn þeirra sem hann leiðir. Hann laðar fram samfélagsþroska og vekur samfélagsvitund á vinnustaðnum. Hann ber virðingu fyrir fylgjendum sínum, leiðbeinir og hvetur þá en hugar jafnframt að grunnþörfum þeirra. Hann á auðvelt með að leysa ágreining, ná fram breytingum og árangri og hefur sterka ábyrgðartilfinningu, framtíðarsýn og skýr markmið. Hann setur hagsmuni skjólstæðinga og starfsfólks í forgrunn. Það er andstætt hugsun hans að sækjast eftir valdi, virðingu og hagnaði. Þjónustuleiðtogi vekur tilfinningu annarra fyrir því að þeir skipti máli. Þetta skilar sér í góðri þjónustu við skjólstæðinga (Birna G. Jónsdóttir, 2006). Forysta, sem setur í forgang að þjóna þeim sem þjóna öðrum, á erindi í hjúkrun. Ef allir hefðu þetta hugarfar má gera ráð fyrir að góð samstarfsvitund sprytti fram sem vekti betri líðan og gæði þjónustunnar yrðu Meiri. „Forysta, sem setur í forgang að þjóna þeim sem þjóna öðrum, á erindi í hjúkrun.“ Með styðjandi og uppbyggjandi samskiptum eflast hjúkrunarfræðingar og fá jákvætt viðhorf gagnvart eigin stöðu svo að geta þeirra til að veita gæðahjúkrun vex. Rannsóknir hafa sýnt jákvæða svörun milli eflingar hjúkrunarfræðinga, trausts til stjórnenda og hollustu við stofnunina. Fái hjúkrunarfræðingar að taka þátt í Heiðarleiki Sanngirni Heilindi Áreiðanleiki Virðing fyrir undirmönnum Fagleg þekking Næmi á fólk Samskiptahæfni Jákvæðni Aðgengilegur Styðjandi og hvetjandi Opnir fyrir hugmyndum annarra Tafla 2. Leiðtogaeiginleikar sem hjúkrunarfræð­ ingar telja mikilvæga (Thompson o.fl., 2003).

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.